08.05.1950
Neðri deild: 97. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1402 í B-deild Alþingistíðinda. (2281)
157. mál, landshöfn í Keflavíkur- og Njarðvíkurhreppum
Atvmrh. (Ólafur Thors):
Herra forseti. Í grg., sem fylgir frv. þessu, koma fram aðalatriði þessa máls. Þar gefur að líta, að heildarkostnaður byggingar landshafnar í Njarðvíkum og Keflavík hefur samtals numið 10 millj. kr. Hins vegar verður ekki hægt að ljúka verkinu, nema til þess verði veitt meira fé. Af þeim ástæðum er flutt af mér og vitamálastjóra, fyrrv. atvmrh., og hæstv. núverandi fjmrh. það frv., sem hér liggur fyrir, en það gerir ráð fyrir, að fjárveitingarheimildin verði hækkuð úr 10 millj. kr. í 15 millj. kr. Um nauðsyn þessa hefur enginn ágreiningur orðið, þótt frv. sé seint fram komið, en ástæðan fyrir því er sú, að nokkuð hefur þótt orka tvímælis, hvernig skyldi fara með málið, og var áður hugsað til þess að fá heimildina á fjárlögum, en nú hefur verið talið réttara að fara þessa leiðina.
Ég leyfi mér svo að vænta þess, að þetta mál fái skjóta afgreiðslu og verði vísað til hv. sjútvn. að þessari umr. lokinni.