09.12.1949
Neðri deild: 10. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1404 í B-deild Alþingistíðinda. (2299)
49. mál, húsaleiga
Páll Þorsteinsson:
Herra forseti. Fyrri flm. þessa frv., hv. 1. þm. Árn., hefur haft fjarvistarleyfi undanfarna daga og er ekki kominn hingað til þings enn þá. Mér þykir því rétt að fylgja þessu frv. úr hlaði með örfáum orðum, vegna fjarvistar hv. fyrri flm.
Það er kunnugt öllum hv. þm., að húsnæðismálin hafa verið og eru vandamál, sérstaklega á þeim stöðum, þar sem fólksfjölgun hefur orðið örust á undanförnum árum, og er það í Reykjavík og nokkrum öðrum kaupstöðum landsins. Vegna þessa þótti á sínum tíma óhjákvæmilegt, að löggjafarvaldið léti þau málefni nokkuð til sín taka, og voru húsaleigulögin í öndverðu sett vegna þess.
Nú hafa húsaleigulögin verið í gildi alllanga stund og hlotið misjafna dóma. Er það kunnugt, að húseigendur annars vegar og leigutakar húsnæðis hins vegar hafa skiptar skoðanir um það, hvaða ráðstafanir beri að gera á þessu sviði og hvort húsaleigulögin eigi að gilda áfram eða hvernig þeim skuli breyta, svo að þessum málum verði sem bezt skipað fyrir báða aðila.
Á undanförnum þingum hafa legið fyrir ýmsar till. í þessum efnum, en ekki hlotið afgreiðslu, vegna þess að mismunandi skoðanir eru uppi um það, í hvaða horf málið beri að færa. — Nú höfum við flm. þessa frv. leyft okkur að bera hér fram frv. um breyt. á gildandi húsaleigulögum. Þær breyt. eru miðaðar við það að taka tillit til beggja aðila, bæði húseigenda og leigjenda. Gert er ráð fyrir því samkv. frv., að húseigendur fái, áður en langur tími líður, full umráð yfir húseignum sínum. En vegna þess að það er mjög misjafnt í hverjum kaupstað fyrir sig, hve brýn þörf er á, að 1öggjafarvaldið hafi hemil á þessum málum, þá leggjum við til í þessu frv., að það sé lagt á vald bæjarstjórna á hverjum stað að ákveða, hvenær húsaleigulögin skuli hætta að framkvæma, þó með þeim takmörkunum, sem um ræðir í 7. gr. frv., þannig að þau ákvæði, sem snerta leigu á einstökum herbergjum, megi falla úr gildi eftir 1. okt. 1950, og ákvæði l. um atvinnuhúsnæði og leiguíbúð, sem er í sama húsi og húseigandi sjálfur býr í, skuli falla úr gildi hvenær sem er eftir 14. maí 1951, en ákvæði l. að öðru leyti eftir 14. maí 1952. — Þá er gert ráð fyrir því í frv., að sett séu hámarksákvæði á húsaleigu, þannig að húsnæði sé metið ekki hærra, en sem svarar sjö krónum á mánuði fyrir hvern fermetra gólfflatar í íbúðinni. Er þetta ákvæði sett leigjendum til verndar, þannig að nokkrar skorður séu reistar við því, fremur en er, að húsaleiga fari mjög úr hófi fram, svo að leigjandi verði að láta mjög mikinn hluta af tekjum sínum í þessar greiðslur. — Þá er enn fremur gert ráð fyrir því, að skipun húsaleigun. verði nokkuð breytt, þannig að í Reykjavík verði t. d. þannig, að Fasteignaeigendafélag Reykjavíkur og Leigjendafélag Reykjavíkur eigi hvort um sig einn fulltrúa í húsaleigunefnd í Reykjavík, en hæstiréttur skipi oddamann, sem sé formaður nefndarinnar. Með þessari skipan sýnist okkur, að báðir aðilar eigi jöfn ítök í húsaleigunefnd og hafi þá góða aðstöðu til þess að bera fram sín sjónarmið, svo að meiri von megi verða til þess yfirleitt, að húsaleigunefnd geti greitt úr þeim vandamálum, sem fyrir hana eru lögð, með samkomulagi beggja aðila.
Að öðru leyti leyfi ég mér að vísa til þeirrar grg., sem fylgir frv., og sé ekki ástæðu til að fylgja því úr hlaði með fleiri orðum, en legg til að, að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til 2. umr. og hv. allshn.