27.04.1950
Neðri deild: 89. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1410 í B-deild Alþingistíðinda. (2307)

49. mál, húsaleiga

Frsm. meiri hl. (Jörundur Brynjólfsson) :

Herra forseti. Það eru aðeins nokkur orð, því að ég sé ekki ástæðu til þess að fjölyrða vegna þeirra andmæla, sem nú hafa fram komið.

Hv. 8. landsk. þm. vildi láta þar við sitja, að beðið væri eftir heildarlögum um húsnæði, og vitnaði í því sambandi í frv., sem fyrrv. ríkisstjórn hafði lagt fram á síðasta þingi. En ég vil þá aðeins benda á það, að þó að það frv. hefði náð fram að ganga, þá fylgdi því það bráðabirgðaákvæði, að húsaleigulögin áttu að gilda áfram og höfuðágallar þeirra um nokkurt skeið, svo að það hefði verið til heldur litillar bótar. En með því að gera þær breytingar, sem hér er lagt til, þá ætla ég, að verði tími til fyrir ríkisstj. að láta gera tillögur um heildarlausn þessara mála, því að það er ekki fyrr en 1952, sem þessi ákvæði eiga að hætta að gilda, og þó er það undir bæjarstjórnunum komið, hvort þau eiga að gilda áfram eða ekki, því að ef bæjar- eða sveitarstjórnir óska eftir því, að ákvæðin gildi áfram fyrir sitt leyti, þá mega þær ráða því, og ætla ég þá, að vel sé fyrir málunum séð, því að þær hafa náttúrlega bezt vit á og er kunnugast um það, hvað hentar þeim, hver í sínu lagi, og hefðu þessi lagaákvæði sannarlega alltaf átt að vera þannig.

Ég get tekið undir það með hv. 8. landsk. þm., að það er mjög gagnlegt, að heildarlöggjöf verði sett um þetta mikilsverða mál, en ég held bara, að það verði að vera í öðrum búningi heldur en það frv., sem fyrir lá á síðasta Alþingi.

Hv. 8. landsk. drap nokkuð á ákvæði 5. gr. og fannst, að það væri of illa skilgreint, hvað íbúð væri. Það er reyndar rétt, en þar er líka stuðzt við eldri lög, en það er eins og ég sagði í upphafi, hér er ekki um hreina nýsmíði að ræða, heldur aðeins bráðabirgðabót, þetta er bót á gamalt fat, sem er ætlað að duga þar til heildarlöggjöf verður sett. En vandinn er hvorki meiri né minni, en verið hefur síðan l. voru sett, því að það hefur verið á valdi húsaleigunefndar að meta um þetta atriði, og það verður það náttúrlega framvegis, svo að það er því ástæðulaust að gera svo mikið veður út af þessu atriði, og vafalaust má í framtíðinni styðjast við þann praxís, sem húsaleigunefnd hefur um þetta fengið, og um einstakar íbúðir gildir vafalaust sama framkvæmd á mati og verið hefur, þegar verið er að ákveða húsaleigu. Í 12. gr. laganna er ekki heldur að því vikið, hvað húsaleigunefnd eigi að hafa til grundvallar mati sínu, hún hefur bara orðið að kynna sér öll helztu atriði varðandi íbúðirnar, og sú nefnd, sem taka á við af henni, á þess vegna að haga framkvæmd sinni eins.

Ég skal nú ekki fjölyrða frekar vegna ræðu hv. 8. landsk., enda talaði hann mjög vingjarnlega um málið og sagði, að hann vænti heildarlöggjafar um þetta efni. Það skal ég fúslega taka undir með honum, að nauðsynlegt er að gera slíka bót á, og þá skal ekki standa á mér, þegar þar að kemur, en það getur nú ekki orðið í einni svipan og verður varla afgr. á þessu þingi. Til þess þarf lengri tíma til undirbúnings.

Þá andmælti hv. þm. Siglf. frv. og vitnaði til frv., sem hann flytur á þessu þingi og samið er af leigjendafélaginu. Hv. allshn. átti tal við fulltrúa frá leigjendafélaginu, þegar hún hafði málið til afgreiðslu, en það, sem þeir, lögðu aðaláherzluna á, það er ekki í þessu frv., heldur var það fyrir framtíðina, um að gera ráðstafanir til þess að koma upp ódýru húsnæði. Hv. þm. vildi kalla þessi lög pappírsgagn, sem kalla mundi vandræði og örbirgð yfir fjöldann og leiða hann út á götuna. En þetta er nú nokkuð yfirdrifið hjá hv. þm., nema hann gangi út frá því, að meðan nokkuð er eftir af leigjendum í bænum, þá viðhafi eigendur húsanna þær aðferðir, sem hann nú nefndi. En í öðru orðinu viðurkennir hv. þm., að eldri lög hafi gert sitt gagn, þó að þau hafi verið brotin í grundvallaratriðum og farið í kringum þau, og þannig gæti líka farið, að frv. hans yrði margbrotið og farið í kringum það, því að það eitt, að frv. er borið fram af honum og flokksbróður hans er náttúrlega engin trygging fyrir því, að ekki verði farið í kringum ákvæði þess. Það er ekki hægt að tryggja það, og þess vegna megum við ekki láta ákvæði l. ganga of langt, svo að þau verði frekar haldin. Húsaleigul., eins og þau nú eru, leiða af sér mikið ranglæti, og hv. þm. viðurkennir það, eins og l. eru framkvæmd, en því þá ekki að ráða bót á þeim og laga verstu agnúana, sem á þeim eru? Hv. þm. vitnaði til þess, hve margir sæktu um íbúðir til Reykjavíkurbæjar, sem hann er nú að koma upp og fara að komast í notkun, en það þarf ekki endilega að bera vott um húsnæðisskort, þó að menn vilji kaupa sér hús, og það geta þeir gert, sem nú eru leigjendur.

Mér þykir vænt um það, að þessi hv. þm., sem andmælti þessu frv., viðurkenndi nauðsynina á að ráða bót á húsnæðismálunum og að hann skyldi ekki geta mælt á móti því, að þær tillögur, sem hér liggja fyrir, ráða einmitt bót á þeim. Hitt er ekki hægt að fullyrða fyrirfram, hvort farið verður í kringum löggjöf og hún brotin, en það er að heyra á tali þessara manna — ég vil þó undanskilja hv. 8. landsk. — að það ætti aldrei að setja neina löggjöf nema það væri tryggt. En það er vitað, að svo að segja öll löggjöf er af einhverjum brotin, svo að það er því ástæðulaust að leggja árar í bát af þeim sökum. En þar sem hv. þm. viðhafði stór orð, bæði um húsaleigulögin og þetta frv., þá vona ég, þar sem hann viðurkenndi, að lögin væru ranglát í sumum tilfellum og þyrftu breytinga við, að hann flytji brtt., sem einhver bót er að, en komi málinu ekki fyrir kattarnef með því að greiða atkv. með till. um rökst. dagskrá, en þau stjórnarvöld, sem mestan kunnugleika hafa um þetta, geti haft það í hendi sér, hvort þau vilja, að ákvæði laganna gildi áfram eða ekki.