04.05.1950
Neðri deild: 95. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1419 í B-deild Alþingistíðinda. (2318)

49. mál, húsaleiga

Frsm. meiri hl. (Jörundur Brynjólfsson):

Herra forseti. Meiri hl. allshn. hefur leyft sér að bera fram brtt. við 7. gr. frv. Það er að vísu um litla efnisbreytingu að ræða, heldur aðallega ótvíræðara orðalag í sambandi við ákvörðunarrétt bæjar- og sveitarstjórna um gildi laganna. Það er að segja, að lögin haldi gildi, ef bæjar- eða sveitarstjórnir óska þess.

Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þessa litlu breytingu og vænti, að öllum þm. sé ljóst, hvað við er átt.