13.05.1950
Efri deild: 105. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1421 í B-deild Alþingistíðinda. (2329)
49. mál, húsaleiga
Frsm. meiri h.l. (Karl Kristjánsson):
Herra forseti. Eins og þingskjöl bera með sér, þá áttu allshnm. ekki samleið um málið. Meiri hl. leggur til, að frv. verði samþ. óbreytt, og til þess eru aðallega 3 ástæður. Sú fyrsta, að meiri hl. telur frv. til bóta, í öðru 1agi, að form þess sé viðunandi, og í þriðja lagi, að svo langt er áliðið þingtímans, að ef breyt. yrði á því gerð, þá mundi það vera sama og að málið dagaði uppi. Minni hl. leggur fram brtt. og boðar, að ef þær nái ekki fram að ganga, þá muni hann leggja fram fleiri, og þess vegna er ekki hægt að gizka á, hvað fyrir kann að 1iggja við 3. umr. frá minni hl.
Ég vil með nokkrum orðum minnast á einstakar gr. þessa frv.
1. gr. húsaleigul. fjallar um það, að húseigandi hafi rétt til að segja upp leigusamningi, ef hann eða skyldmenni hans þurfa á því að halda. Aðalbreyt. í 1. gr. þessa frv. er í því fólgin að taka upp í l., þá skyldmennatölu, sem til greina kemur, systkini húseigenda, og það má að sjálfsögðu telja sanngjarnt. Í öðru lagi er í þessari gr. brtt. um tímatakmarkið fyrir því, hvað lengi húseigandi á að hafa átt eignina; það var frá 9. sept. 1941, en færist til 1. jan. 1946. Má það að sjálfsögðu eðlilegt heita, af því að takmarkið hefur haldizt síðan l. þessi gengu í gildi.
2. gr. frv. felur í sér þá breyt., að skylt sé að láta barnafjölskyldur sitja fyrir húsnæði, sem á að leigja. Vafalaust mun enginn hafa á móti því, og allri þótti n. það til bóta.
3. gr. er um þá breyt., að fækkað sé mönnum í húsaleigunefnd Reykjavíkur, að 3 menn skipi þá n. framvegis, en áður voru þeir 5. Satt að segja virðist þetta eðlilegt, bæði vegna þess, að engin sérstök trygging er fyrir því, að ráðið verði betri ráðum, þó að fleiri menn komi saman, og svo líka hitt, að svo mikið er um nefndastörf, að rétt er að draga úr fyrirhöfn í þessum efnum, þar sem því verður við komið. — Þá er það, hvernig þessi n. er skipuð. Áður voru 2 menn skipaðir af bæjarstjórninni, 2 af ríkisstj. og 1 af hæstarétti. Nú er lagt til, að n. verði þannig skipuð, að Leigjendafélag Reykjavíkur tilnefni einn mann, Fasteignaeigendafélagið einn og hæstiréttur einn. Vafalaust er það til bóta, að leigjendur og húseigendur, þeir aðilar, sem þarna eiga að beinastan hlut, fái aðstöðu til að vera þátttakendur í þessari n. Þá er enn fremur lagt til, að sú breyt. verði á, að n. haki nú öll þátt í að meta leigusamninga, en áður var það n. úr nefndinni; er það eðlilegt, þegar nm. hefur verið fækkað.
4. gr. frv. er um það, að utan Reykjavíkur skuli valið á mönnum í húsaleigun. vera á sama hátt og í Reykjavík, þegar 1eigjendafélagsskapur og fasteignaeigendafélag er fyrir hendi.
5. gr. felur í sér ákvæði um hámarksverð á húsaleigu, en áður hefur það ekki verið. Það virðist vera mjög mikil trygging í því fyrir leigutaka. Þau hámörk, sem tiltekin eru í frv., eru á þá leið, að gera má ráð fyrir, að húsaleiga í mörgum tilfellum lækki, ef l. verður framfylgt.
6. gr. er um hækkun á viðurlögum, og ætti enginn að hafa neitt við það að athuga.
7. gr., sem telja má að ýmsu leyti aðalgr., er um það, hvernig skuli leysa upp þessa löggjöf. Nú er það svo í landi okkar, að telja má, að þjóðin sé farin að þjást af nokkurs konar lagavaldi. Þetta er kannske fyrir ofrausn löggjafarþingsins og að ýmsu leyti einnig fyrir það, að yfir þjóðina hafa gengið sérstakir tímar, hernámið, stríðsáhrifin, sem gerðu lagasetningu í ýmsum efnum nauðsynlega, sem ekki er ástæða til, að við búum við á normal tímum. Nú virðist það svo, að minni hl. hafi mjög mikið við það að athuga, að löggjöfin sé afnumin. En ég fyrir mitt leyti lít svo á, að það sé mjög skynsamlega til lagt að gera ráð fyrir því, að þjóðin sjálf leysi sig undan löggjöfinni eftir því, sem hún telur rétt vera. Ég tel það ofur heilbrigt, að þau sveitarfélög, sem það vilja, geti haldið hjá sér þessari löggjöf, en önnur megi leysast undan henni, því vitanlega er það víðs vegar um landið, að húsaleigul. eru ekkert nema pappírsgagn. Aðallega eru þau fyrir Reykjavík, og það er engin ástæða til að ætla, að Reykjavík hafi ekki dug til þess að framlengja þessi l., ef henni virðist þau þurfa að gilda áfram hjá sér. Minni hl. leggur til, í till. sinni, að það verði látin um land allt fara fram rannsókn á húsnæðisvandamálunum og reglugerð verði gefin út, sem segi fyrir um slíka rannsókn. Mér finnst þetta bera vott um það, að enn sé hugsað of mikið um að vafstrast að óþörfu í þessum félagsmálum, og mér finnst fjarstæða að leggja það á sveitarfélög landsins, þar sem l. hafa ekki sérstaka þýðingu, að senda út n., skrifa skýrslur og vefja sig þannig í fyrirhöfn og skjalafargan. Það er enginn vafi á því, að þau sveitarfélög, sem það vilja, geta látið slíka rannsókn fara fram, þó að þetta frv. verði að l. Af framangreindum ástæðum vil ég þess vegna leggja áherzlu á, að frv., eins og það liggur fyrir, verði samþ.