13.05.1950
Efri deild: 105. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1428 í B-deild Alþingistíðinda. (2334)
49. mál, húsaleiga
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Það var út af ummælum hv. 7. landsk., sem mér þykir rétt að segja nokkur orð og svara ummælum hans um persónulega afstöðu mína í heilbrigðis- og félagsmálan. Hv. þm. taldi, að vonir hefðu staðið til, að samkomulag næðist á milli fulltrúa Sjálfstfl. í n. og hinna fulltrúanna um breytingu á frv. um stóríbúðaskatt. Ég vil nú í þessu sambandi lýsa því enn yfir, sem ég hafði áður gert í n. og hér við umræður, að af tvennu illu vildi ég heldur að tekin yrði upp skömmtun á húsnæði, en stóríbúðaskattur. Ef taka ætti upp skömmtun, verður það ekki gert nema af undangenginni ýtarlegri rannsókn og ekki nema knýjandi nauðsyn teljist þá vera fyrir hendi. Sé slíkt ástand fyrir hendi í bænum, að ekki þyki hjá því mega komast, þá mun bæði ég og aðrir beygja sig undir skömmtun. En á því er reginmunur og á beinum refsiaðgerðum eins og stóríbúðaskattinum gagnvart þeim, sem með framtaki og dugnaði eiga mestan þátt í að bæta úr húsnæðisþörfinni og byggt hafa yfir sig sjálfir. Þetta vil ég taka skýrt fram. — Um afstöðu hins n.-fulltrúans, hv. þm. Seyðf., gildir sú yfirlýsing, er hann hefur gefið hér, að ef frv. um stóríbúðaskatt ætti fram að ganga, þá vildi hann vera með að semja heldur um hvert atriði, sem horfa þætti til bóta í frv., og fá því breytt, en að samþykkja það eins og það væri. Annars er það nú svo, að fyrst þegar mál þetta kom fyrir, þá var ákafi meiri hl. n. svo mikill að berja það strax í gegn, að það mátti ekki einu sinni bíða eftir umsögnum viðkomandi aðila, og ég fékk því aðeins framgengt, að fyrirspurnir væru gerðar til þeirra með því skilyrði, að svör bærust innan 14 daga. En þessi ákafi hefur nú minnkað síðan, og ástæðan til þess er sú takmarkalausa andúð, sem almenningur sýndi frv. fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vetur. Þá opnuðust augu flm. frv. og nm. fyrir því, að hér væri farið út á ranga braut og ólíklega til vinsælda, og þess vegna hefur nú verið tekin sú stefna að salta það mál.
Út af ummælum hv. 1. landsk. um það, að þetta frv. stefndi út í hreint öngþveiti og þeir sem að því stæðu mundu verða dregnir til ábyrgðar fyrir gerðir sínar, þá vil ég benda honum á, að ef sá spádómur rætist, að þúsundum manna verði kastað á dyr, ef húsaleigulögin verða afnumin, — heldur hann þá virkilega, að það verði gert til þess að láta húsin standa auð? — Nei! Það verður fyrst og fremst gert til þess að losna við fólk, sem menn hafa orðið að sitja uppi með vegna laganna, þó það hafi verið hreint kvalræði að búa með því öll þessi ár. Og það vita allir, að á mörgum stöðum hefur sambúð manna verið þannig af þessum sökum, að kalla má hreinasta víti. Þessir leigjendur verða nú að fá sér annað húsnæði og aðrir koma í þeirra stað. Það hverfur ekkert af þessum húsum af markaðnum, þótt lögin séu felld úr gildi; en það hverfur mikið af úlfúð og takast upp skynsamlegri samningar um húsnæði, og eklan verður beinlínis minni með samþykkt þessa frv., því að frelsið í þessum efnum mun leysa þann vanda, sem ekki tókst að leysa úr með kúgunarráðstöfunum. Í þessu sambandi vil ég benda á, að þá, sem ráða yfir húsnæði, má flokka í þrennt. Í fyrsta flokkinum eru þeir, sem reist hafa sér íbúðir af frjálsum vilja og framtaki; sá flokkur er langstærstur og mun ráða yfir 80–90% af öllu húsnæði í landinu. Þessir menn hafa sjálfir komið upp sínum húsum og ekki fengið til þess neina aðstoð, en þeir eiga langmestan þátt í að leysa þann vanda, sem húsnæðisvöntunin er. En hvernig hefur verið farið með þessa menn? Þeir hafa beinlínis verið hundeltir og ofsóttir látlaust af vinstri flokkunum, og þessi mál hafa verið reyrð í þá fjötra, að þeir hafa alls ekki verið þessara eigna sinna ráðandi né fengið að ráðstafa þeim eins og öðru, sem þeir hafa átt. Og þó hafa þessir menn leyst þann vanda, sem hið opinbera hefði annars orðið að taka að sér, og án þess að fá til þess nokkra hjálp. Þá eru í öðrum flokkinum þeir menn, sem hafa byggt hús í landinu og fengið til þess aðstoð í lánum eða styrkjum hins opinbera, sbr. t. d. lögin um verkamannabústaði. Loks eru svo í þriðja lagi þeir, sem bær og ríki hafa byggt yfir, og er sá hópur langminnstur.
Á þann flokkinn, sem stærstur er og hefur að langmestu leyti átt þátt í að leysa húsnæðisvandamálin, hefur verið hafinn skipulagður áróður, og hann hefur of lengi orðið að þola það, að réttur hans væri stórlega skertur með slíkri lagasetningu sem húsaleigulögin eru. Þau hefði átt að vera búið að afnema fyrir löngu. Og enda þótt þetta frv. gangi ekki nægilega langt, þá verður þó að teljast að því stórkostleg bót á því neyðarástandi, sem ríkt hefur í þessum málum, og þær hrakspár, sem um það hafa verið hafðar, munu reynast fjarstæður einar. Ég mun því ljá þessu frv. fylgi mitt og sé ekki ástæðu til að fara um það fleiri orðum; vildi aðeins láta það koma fram, sem nú er sagt.