15.05.1950
Efri deild: 108. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1463 í B-deild Alþingistíðinda. (2354)
49. mál, húsaleiga
Hannibal Valdimarsson:
Herra forseti. Hv. þm. Barð. taldi sig nú tilbúinn að kveðja sér hljóðs til að lýsa þau ummæli mín ósannindi, að um ákveðinn flokk hefði jafnan farið svo í samstarfi við Sjálfstfl., að um hin góðu mál. . . (Forseti: Ég óska eftir því, að rætt sé um frv.) hefði orðið samkomulag, að þau næðu eigi fram að ganga. Hann taldi flokk minn hafa fengið reynslu af þessu. Verður því vart undanhalds hjá honum. Ég get minnt á rök hæstv. fjmrh. um niðurfelling 3. kafla l. um útrýmingu heilsuspillandi íbúða. Dæmin liggja nær, en hv. þm. Barð. vill viðurkenna. Þótt hann lýsi ummæli mín ósönn, þá eru þau jafnnærri sannleikanum fyrir því, og mótmæli standast ekki, því að ummæli mín eru í samræmi við staðreyndir.
Þá mótmælti hann till. minni um skömmtun á húsnæði og stóríbúðaskatt. Í fyrsta lagi taldi hann sig geta fremur verið fylgjandi skömmtuninni. En vitanlega verður skatturinn einnig settur inn í gr. í frv., ef þetta verður samþ. Hefur hv. þm. þó vitanlega óbundnar hendur. En framsóknarmenn hafa greitt atkv. með stóríbúðaskatti, þar eð 3 hv. þm. þeirra hafa flutt frv. þess efnis á þessu þingi. Verður því hægt að gefa hvorum tveggja aðila tækifæri til að standa við fyrri fullyrðingar sínar.
Fullyrðing hv. þm., að ég hafi lýst húseigendur glæpamenn, eru hans eigin gífuryrði. Ég er sjálfur húseigandi og væri því í hópi þeirra glæpamanna, sem hann lýsir. Hitt hef ég sagt, að full ástæða væri til, eins og málunum er nú háttað, vegna hækkandi verðlags og versnandi efnahags almennings og hins, hverjir slagbrandar nú eru settir af fjárhagsráði fyrir það, að byggingarefni fáist í íbúðarhús, að hafa öll verndarákvæði í l. fyrir leigjendur. Mundi ég sætta mig við ákvæði, sem kæmu í veg fyrir okur. Ég er ekki steinblindur, eins og hv. þm. Barð., á þörf þeirra manna, sem þurfa að fá leigt húsnæði. Það er mikið djúp staðfest á milli þess að stimpla húseigendur sem glæpamenn og að koma í veg fyrir hækkaða leigu vegna nauðsynjar þeirra, er taka þurfa á leigu.
Ég hef eigi túlkað annað í ræðu minni en það, sem hv. þm. Barð. bar á móti.