02.03.1950
Efri deild: 67. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1469 í B-deild Alþingistíðinda. (2370)
103. mál, skógrækt
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Ekki ætla ég að taka fram fyrir hendur hv. frsm. þessa máls og ekki að halda það námskeið, sem hann var að vísa hæstv. dómsmrh. á. En hitt ætla ég að gera, ég ætla að gera nokkra grein fyrir, í hverju þessar brtt. eru fólgnar, sem hæstv. dómsmrh. virðast svo ákaflega þungskildar, og mun ég þá jafnframt að nokkru gera grein fyrir, hvernig þær eru til orðnar.
Fyrsta breyting n. frá því, sem er í frv., er sú, að skilgreint er, hvað er búfé. Við ætlumst ekki til þess, að drepin séu hænsni, gæsir, kettir og hundar, þó að þessi dýr komist inn á skógræktarsvæði, en allt er þetta réttdræpt, ef það kemst tvisvar inn á þessi svæði, eftir frv., eins og það liggur fyrir. Það er skilgreint í okkar till., að það sé sauðfé eða geitfé, annað ekki. (GJ: Ekki karakúlfé?) Það heitir allt sameiginlega sauðfé, hvað sem afbrigðin heita, eins og talað er um menn, hvort sem það eru dánumenn eða varmenni. Þar næst ætlast frv. til þess, að öll lönd, sem kölluð eru skógræktarsvæði og girt eru fullgildri girðingu, skuli friðuð. Nú eru til girðingarl., sem taka fram, hvað er fullgild girðing. Það er á allra manna vitorði, sem eitthvað þekkja til úti um landið eða utan Reykjavíkur, hvernig þessu hagar til, og girðingar, sem eru fullgildar eftir girðingarl., sem eru gömul, eru ekki sauðheldar. Það er gefin vissa, að með því að láta þetta standa eins og það var í frv. var til fjöldi af girðingum, sem ekki voru sauðfjárheldar, sem áttu þó að fá þau réttindi, að hver skepna, sem kæmist inn um girðinguna í annað sinn, skyldi vera réttdræp. Til þess að komast hjá þessu, settum við þann varnagla, að úttektarmenn viðkomandi hreppa skuli athuga og ákveða um það, hvort girðing teljist fullgild, og því aðeins, að sú athugun hafi farið fram, öðlast girðingin þann rétt, sem frv. gerir ráð fyrir. Þetta er önnur breyt. okkar. Við látum það undir mat úttektarmannanna að dæma um, hvað sé fullgild girðing. Þá vildi ég, að þetta næði aðeins til skógræktarsvæða ríkisins, en ekki til einstakra manna, en í staðinn gæfum við sýslun. heimild til að láta þessa skipun ná til skógræktarfélaga innan sýslunnar, en hreppsn. heimild til að láta hana ná til skógræktarlanda einstaklinga innan hreppsins. Um þetta varð ekki samkomulag í n., þar sem hún féllst ekki á mitt sjónarmið, en til samkomulags var ákveðið, að þau skógræktarsvæði, sem heyra undir skógræktarstjóra, skyldu beint koma undir l. Nú er að athuga, hvaða svæði það eru. Það eru í fyrsta lagi þau skógræktarsvæði, sem ríkið á, því að enginn vafi er um það, að þau heyra undir skógræktarstjóra og ekki neinn annan. Í öðru lagi heyra þau svæði undir skógræktarstjóra, sem hann hefur af ríkisins hálfu látið styrk til gegn ákveðnum skilyrðum, sem hann á að sjá um að sé fullnægt. Þau skógræktarsvæði eru mörg. Þá koma allmörg svæði, sem prívatmenn eiga, sem skógræktarstjóri getur fengið einhvers konar umsjón yfir. Prívatmenn geta samið um, að svæði þeirra komi þarna undir. Slík svæði eru ekki til, þegar þessi l. eru sett, en hv. frsm. hefur komið þessu inn í frv., og þá tel ég, að ég sé hlunnfærður, en ekki, að ég hafi hlunnfært aðra, ef þetta er talið að fara á bak við einhvern. Þá er þess að geta í þessu sambandi og það gerði mig alltaf myrkfælinn við l., að þegar við lítum á skógræktargirðingarnar, þá kemur það í ljós, að það skiptir þúsundum, sem smalað hefur verið úr skógræktargirðingum á hverju hausti, hundruðum hefur verið smalað úr Þingvallagirðingunni og tugum úr Hallormsstaðagirðingunni á hverju ári. Það er sagt, að þetta sé sama féð og enginn skaði skeður, þó að það sé drepið, þegar eigi að borga mismuninn á niðurlagsverðinu. En ég minnist þess, að einn af betri hrútum, sem ég hef séð á Austfjörðum — og var eign Thulin Johansen, sem bjó þá á Áreyjum í Reyðarfirði, — hann var kominn ofan úr Hallormsstaðaskógi, þó að hann ætti heima á Reyðarfirði. Ég skal ekki um það segja, hvort eigandi þessa hrúts hefði sætt sig við venjulegt niðurlagsverð fyrir hann, en ég hefði ekki talið það neinar bætur fyrir þá skepnu, ef ég hefði átt hana, svo að það er nokkur spurning, hvort svona bætur út af fyrir sig gætu komið til greina. Þar að auki hefur hagað þannig til nú um nokkurt áraskeið, að það hefur verið erfitt að fá nýtt fé, ef menn hafa neyðzt til að drepa fé af einhverjum orsökum. Líka það atriði gæti þarna komið til greina. Þá er þess að gæta, að ýmis skógræktarsvæði, sem heyra undir skógræktarstjóra, liggja þannig, að þau eru fjarri bæjum og sum mjög langt frá bæjum, og menn eru þar ekki til staðar til neinna hluta nema á vorin, þegar unnið er í löndunum. Það er þess vegna ákaflega hætt við því, að misfellur geti komið fyrir á þessum svæðum, t. d. vatnavextir, svo að vatn grafi sér farveg undir girðingar og eftir því sé ekki tekið fyrr en eftir dúk og disk og fé komist inn í millitíðinni. Ég er þess vegna myrkfælinn við lög sem þessi, þó að ég hafi gengið inn á það til samkomulags að hafa skógræktarsvæði, sem heyra undir skógræktarstjóra, undir þeim.
Þá vantaði með öllu ákvæði um það í frv., eins og það er á þskj. 280, hvað gera skyldi, ef ágreiningur kæmi upp um það, hvort vanrækslu á viðhaldi girðinga yrði um kennt eða ekki. Í frv. var aðeins nefnt mat út af ágreiningi, sem kynni að verða út af fé, sem drepið væri, en ekkert viðvíkjandi hinu. Við höfum bætt því inn í frv., hvernig þá skuli með fara. Ég held þess vegna, að hvernig sem á er litið, sé ekki hægt að segja annað en að okkar brtt. séu til bóta, líka frá skógræktarinnar sjónarmiði séð. Það, sem þarna hefur fallið undan, er það, að skógræktarsvæði einstakra manna, sem skógræktarstjóri hefur enga umsjón með, koma ekki undir l., nema viðkomandi hreppar eða hreppsn. mæli með því. En ég hygg, að þau skógræktarlönd, sem mest eru í eign einstakra manna, hafi fengið styrki og sum líka frá ríkinu., svo að þau heyra undir skógræktarstjóra og koma því undir l. Mestu ásteytingarsteinana ráða þessi l. ekki við, og það er þegar sauðfé hefur komizt inn í skóglönd á vetrum, á snjó, og valdið eyðileggingu. Þessi l. ná ekki til þess, þegar girðingar eru komnar í kaf vegna snjóa, en það hefur komið fyrir sums staðar, þar sem skóglönd eru, og í nokkrum skóglöndum er þetta svona langt fram á sumar, og það mun vera þessi ágangur, sem mestum usla veldur í nokkrum skóglöndum hér á landi. Engin vörn er að girðingu, þegar hún er öll undir snjó, og til þess að ráða við þetta þyrfti önnur l. en þessi. Það yrði þá líklega helzt að banna mönnum í nágrenni við þessi svæði að láta skepnur út á vetrum, þegar snjór er yfir öllu. Á þetta atriði var ekkert minnzt í frv., eins og það var lagt fram, og þess vegna höfum við ekki komið inn á það í nál. Eins og ég sagði áður, þá hefði ég miklu frekar kosið, að l. hefði verið breytt þannig, að þau næðu aðeins til skógræktarsvæða ríkisins, og því mun veitast fullerfitt að girða sín lönd, svo að fullgild girðing megi teljast. Nokkur lönd eru ógirt, eins og t. d. Sigríðarstaðaskógur, og svo er ætlazt til, að engin skepna komi inn í hann. Ég held þess vegna, að ákaflega hæpið sé að fara svona langt í friðunarákvæðin. Grein um sama efni var á sínum tíma sett í sandgræðslul., sem hefur verið breytt nokkrum sinnum. Það er talið, að a. m. k. á einum stað hafi það komið að gagni, að því leyti, að vissum ærstofni, sem hafði vanið sig inn í sandgræðslulandið, hafði verið eytt og ekki komið annað fé í staðinn. Slík tilfelli geta vel átt sér stað á einstöku stöðum, og ég vil ekki standa í vegi fyrir því, að hægt sé að auka friðun skóga; þó að ég sé ekki neinn fanatískur skógræktarmaður og álíti ekki, að taka eigi upp undir helming þess lands, sem ræktanlegt er, undir skóga, þá álít ég, að skógræktin eigi fyllilega rétt á sér og rétt sé að hlynna að henni. En það á ekki að gera á kostnað okkar ræktunarlands. Það er þó ekki hætta á því í bili, en þó er nú deilt mjög um það í Noregi, hvort höggva eigi skóginn og búa til unnið land í stað hans eða láta það vera að höggva hann. Ég hef nýlega lesið tvær greinar í norskum tímaritum, og í annarri var því haldið fram, að sjálfsagt væri að taka skóginn í beitiland, en í hinni var haldið fram, að sjálfsagt væri að gera það ekki, því að skóglendi gæfi meira af sér, en beitiland. Um þetta er deilt í Noregi, en um það skal ég ekkert segja, hvort þeir tímar koma, að um þetta verði deilt hér. Skoðanir eru skiptar um þetta, þar sem skógur er og gefur mikinn arð.
Þá er enn fremur þess að geta, að til þess að stuðla að því, að þeim girðingum, sem koma undir 1. gr. brtt., sé haldið almennilega við, höfum við sett það ákvæði, að ef fé fer inn um girðingu og er drepið af þeim sökum, þá skuli, ef það reynist um að kenna vanrækslu á viðhaldi girðingar, greiða fyrir féð tvöfalt niðurlagsverð. Það er aðhald fyrir þá, sem girðingarnar eiga, að halda þeim það vel við, að vörn sé að þeim, en slíkt brestur mjög víða. Þetta er ekki bara af viljaleysi fyrir mönnum, heldur líka af því, að gaddavír hefur ekki fengizt undanfarið nema einstaka sinnum — og það í smáum skömmtum — hér á landi.
Ég skal svo ekki orðlengja þetta, en ég vænti þess, að brtt. okkar verði samþ. Hún er samkomulags brtt., og ég hef nú skýrt frá því, sem ég hafði við frv. að athuga eins og það var, og frá þeim atriðum, sem við í n. höfum breytt og ég tel, að standi til bóta. Annars álít ég, að þetta verði ákaflega vafasöm tilhögun í framkvæmdinni. Kindur eru reknar út úr skógargirðingu einhvern daginn. Þær eru merktar og mörkin tekin upp og send hreppstjóra. Eftir mánuð er fé kannske komið í girðinguna aftur, og þá kemur í ljós, að einhverjar af sömu kindunum eru komnar þar aftur. Þá hefur skógarumsjónarmaðurinn heimild til að reka þær til hreppstjórans og heimta, að þær séu drepnar. Hreppstjórinn þarf fyrst að ganga úr skugga um, hvort eitthvað hafi bilað í girðingunni. Það getur tekið tíma og spurning, hvort hann vill geyma féð svo lengi. Hann getur því verið búinn að drepa féð, áður en úr því er skorið, hvort girðingunni er um að kenna eða ekki. Eins og frv. kom til okkar, er ekki stafur í því um það, hvernig eigi að að fara í því tilfelli, ef hann hefur drepið féð, án þess að úr því væri skorið, hvort girðingunni var um að kenna. Við höfum sett það ákvæði í frv., að þá skuli greiða tvöfaldar bætur fyrir féð, ef það sannast, að girðingunni verði um kennt. Þetta verður þungt í vöfunum í framkvæmdinni, og náttúrlega er ekki víst, að þetta verði alls staðar framkvæmt. Þetta er ekki framkvæmt svipað því alls staðar viðkomandi sandgræðslugirðingunum, þó að það sé gert í einstökum tilfellum, og mætti segja mér, að eins færi með skógargirðingarnar. Hver skyldi líta eftir Núpsstaðaskógargirðingunni? Og þó farið sé með henni á vorin, en kindur finnist í henni á haustin, hver fer þá að drepa þær kindur eða bíða eftir því, að einhverjir menn fari með girðingunni og athugi, hvort hún sé í fullgildu ástandi eða ekki? Hins vegar er vel líklegt, að hægt sé að framkvæma þetta og að það geti orðið að gagni, þar sem mikið uppeldi ungviðis er.