09.05.1950
Efri deild: 103. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1485 í B-deild Alþingistíðinda. (2414)

103. mál, skógrækt

Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson):

Mér virðist hv. þm. Barð. vera nokkru vöruvandari um vörur, sem aðrir bjóða, en hann sjálfur. Ég held, að það sé almennt svo, að þegar talað er um mat, þá sé þar átt við dómkvadda menn og venjulega sé því ekki skotið til annarra matsmanna, t. d. þegar metnar eru vöruskemmdir. En ég geri ráð fyrir, ef það kæmi fram, að matsmenn hefðu ekki rækt skyldu sína, þá væri hægt að fá úrskurð um að láta mat fara fram á ný. Hv. þm. var búinn að samþ. þetta hér í d. fyrir nokkru, áður en málið fór til Nd.