16.05.1950
Efri deild: 109. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1517 í B-deild Alþingistíðinda. (2520)
171. mál, lánveitingar og lántaka vegna Sogs- og Laxárvirkjana
Landbrh. (Hermann Jónasson) :
Herra forseti. Það er alveg rétt athugað, að þessar stórvirkjanir, Laxá og Sogið, ná ekki nema til nokkurs hluta landsins, og það hefur verið rætt um það í ríkisstj., og það verða teknar umræður um þetta eftir að þinginu lýkur, vegna þess að það hefur ekki unnizt tími til þess enn vegna ýmissa annarra mála, hvernig haga eigi smærri virkjununum og koma þeim áleiðis. Ég vil taka það fram í þessu sambandi, að ég hef ekki síður áhuga fyrir þeim virkjunum, en þessum, sem hér eru til umræðu, en það þyrfti helzt af öllu að vera hægt að leysa þessi mál samhliða. Hins vegar get ég ekki lýst því nú, hvernig þessu muni hagað í framkvæmdinni. Um þetta hefur verið mikið rætt, einkum þar sem fallvötn eru fyrir hendi, en ekki hafa verið skilyrði til þess að hafa not af þeim.
Viðvíkjandi styrknum til dieselvélarafstöðvanna get ég ekki gefið aðrar yfirlýsingar en þær, að úthlutun á honum skal vera gerð af sanngirni og eins og menn hafa bezt vit á. Þó að ég hafi ekki í höndunum heimildir, sem sýna útgjöld raforkumálasjóðs, þá veit ég, að þau eru mikil, því að ég veit, að það hefur verið ráðizt í miklar framkvæmdir, sem ekki hafa verið fullgerðar. Þannig hefur verið byrjað á mörgum framkvæmdum og það gert, sem ódýrara hefur verið, en eftir er það, sem dýrara er; og sú fjárveiting, sem á fjárlögum er ætluð raforkumálasjóði, getur engan veginn nægt til þess að fullgera allt, sem byrjað hefur verið á, og þess vegna var í byrjun þings veitt heimild til þess að taka 1.5 millj. kr. að láni í þessu skyni. Ég skal svo ekki fara að rekja þetta nánar núna, en það er vitað, að raforkumálasjóður er ofhlaðinn í ár og eitthvað fram á það næsta.