15.05.1950
Efri deild: 108. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1520 í B-deild Alþingistíðinda. (2529)

175. mál, Laxárvirkjunin

Landbrh. (Hermann Jónasson):

Ég hef ekkert annað að segja, en að þessar aths. eru efnislega réttar. En það stendur þannig á þessu, að eins og hv. þd. er kunnugt, þá hefur mikið verið rekið á eftir þessu máli, virkjun Sogsins og virkjun Laxár, því að báðar eru þessar virkjanir aðkallandi, en við höfum ekkert getað fullyrt um það, hvort hægt væri að ganga frá þessu máli frá þessu þingi, og ástæðan er sú, að það hefur staðið á samningum um það, hvort við fengjum að nota Marshalllánið í þessar virkjanir. Í fyrrakvöld klukkan 8 kom tilkynning um það, að það hefði verið fallizt á, að þetta lán yrði notað í þessum tilgangi. Samningar hafa staðið yfir um þetta, og skrifstofustjórinn í viðskiptamálarn., sem hefur með þessi mál að gera, hefur að því er snertir Marshallféð unnið að því að gefa skýrslu um þessa þörf og gera hana ljósa þeim, sem ráða um þetta atriði, og það var síðast í fyrrakvöld, sem gefin var út tilkynning um það. Þá var farið að ræða við Akureyri um þetta, og þeir tóku því mismunandi, sumir stjórnmálaflokkarnir í bæjarstj. voru þessu samþykkir og álitu hyggilegt, að ríkið eignaðist þá hluti, sem gert er ráð fyrir í þessu frv., en fulltrúar annarra flokka voru þessu ekki mótstæðir, en sumir fordæmdu það. Seinast í dag töluðum við, við bæjarstjórann um þetta mál, og við gerum ráð fyrir, að það verði ekki mótstaða á móti þessu. Þetta eru ástæðurnar til þess, að við verðum að bera þetta mál fram nú á allra seinustu stundu. Það er rétt hjá hv. þm. Barð., að það er mjög leitt, að þetta kemur svona seint fram, en um annað var ekki að ræða, ef á að koma þessu máli fram, svo mjög sem liðið er á þingtímann, en að hafa hraðann á. Um hitt atriðið, að málið sé sent til iðnn., en ekki fjhn., er það að segja, að sú aths. mun líka vera efnislega á rökum reist, en hún er ekki sök míns ráðuneytis, heldur kemur það af því, að í þessu bréfi um málið stendur, til iðnn. Alþ. Þessar aths. eru efnislega réttar, en ástæðurnar fyrir því eru þær, sem ég hef skýrt frá.