09.02.1950
Efri deild: 51. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 2 í C-deild Alþingistíðinda. (2550)

104. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson):

Herra forseti. Við framsögu þessa máls lýsti hv. 1. flm. frv., þm. Str., því svo rækilega, og það er svo stutt um liðið síðan, að það er ekki ástæða til að taka það hér upp.

Meiri hl. fjhn., þ. e. a. s. allir, sem viðstaddir voru á fundi n., voru sammála um að leggja til, að frv. gengi fram eins og það var lagt fyrir þessa hv. d. — Yfirleitt er hér um svo litla upphæð að ræða, að það munar í raun og veru ríkissjóðinn engu, þó þetta frv. verði samþ., ef ekki verður gengið lengra, en gert er í frv.

Ég áskil mér rétt til að bera fram brtt. við 3. umr. við frv. En eins og sakir standa, legg ég til fyrir hönd okkar fjögurra nm., að þetta frv., eins og það nú liggur fyrir, verði samþ.

Það leikur ekki á tveim tungum um það, að þetta mál er nauðsynjamál, að auka skóggræðsluna hér á landi. Og það er öðruvísi háttað með skóggræðsluna en um aðra ræktun, þannig að skóggræðslan kemur svo seint til nota. Þar sem brotið er land til grasræktar, getur það jafnvel á næsta ári gefið fullan arð. En viðkomandi skóggræðslunni getur liðið hálfur mannsaldur og jafnvel meira, frá því að plönturnar eru gróðursettar og þangað til plönturnar verða til nytja. Og þessi gróður verður að eign í landinu. Og þó að einstaklingar framkvæmi þetta skóggræðslustarf, þá þykir mér ekki síður ástæða til að styrkja þá til þess að koma skóggræðslunni áfram heldur en að ríkið leggi fram stórfé til þess að koma skóggræðslunni áleiðis.