09.02.1950
Efri deild: 51. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 4 í C-deild Alþingistíðinda. (2553)

104. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Ég skal ekki fara mikið út í þetta mál. Mönnum er þetta kunnugt áður. Ég hef yfirleitt verið á móti undanþágum til einstakra manna viðkomandi skattgreiðslum, og er það enn. En það, sem ég vildi sérstaklega benda á hér, er það, að fyrir þessari hv. d. liggja tvö frv. um breyt. á l. um tekjuskatt og eignarskatt, og fóru bæði frv. í sömu nefnd. Annað er frá því í haust á þskj. 86, og hitt er það frv., sem hér liggur fyrir, sem er 104. mál. Þegar svona lagað liggur fyrir eins og hér, finnst mér alveg sjálfsagt að sameina þetta í eitt. Við höfum nóg af lögum og breyt. á l., þó að við séum ekki að leika okkur að því á sama þingi að láta koma tvær lagabreyt. á sömu l. Ef hv. þd. er ekki staðráðin í að svæfa það frv. um breyt. á þessum l., sem er á þskj. 86, þá á að sameina þessi tvö frv. og láta þá koma frá þessu þingi lög um aðeins eina breyt. á þessum l. og ekki meira. En ef hv. þd. er staðráðin í að svæfa málið á þskj. 86, þá er bezt að fá að vita það. Það mun sýna sig, að þegar einhver hreppstjóri einhvers staðar flettir upp í Stjtíð., þá er hann ekki svo hugkvæmur, að hann geri ráð fyrir, að það hafi verið gerðar margar breyt. á sömu l. á sama þingi, og þá fara önnur lögin bara fram hjá honum. Því að honum dettur ekki í hug, að Alþ. sé að lengja ræðutíma og auka prentunarkostnað og fyrirhöfn og gera mönnum örðugra fyrir yfirleitt með því að breyta tvisvar einum og sömu l. á einu og sama þingi.

Ég vildi því, að hv. fjhn. samræmdi þessi tvö frv., þannig að það verði aðeins ein breyt., sem gerð verði á þessum l. á þessu þingi, en ekki að þeim verði breytt tvisvar á þinginu. Ég vil mjög mælast til þess, að hv. n. athugi þetta, ef hún er ekki staðráðin í að svæfa frv. á þskj. 86. Og jafnvel þó að hún ætlaði sér það, væri rétt að láta það þá koma fram í sambandi við afgreiðslu þessa máls, sem hér liggur fyrir nú. Maður getur hugsað sér, að hv. n. ætli sér að svæfa það mál, á þskj. 86, þar sem hún er ekki komin fram með það enn þá.