25.02.1950
Efri deild: 61. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 9 í C-deild Alþingistíðinda. (2564)
104. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Ég ætlaði ekki að ræða málið, vegna þess að ég hef fallizt á þá ósk hv. 11. landsk. að taka till. aftur til 3. umr., en vegna þess að hér er komin fram ósk frá hv. þm. Str., sem er einn af flm., um að taka till. að öllu leyti til baka, þá vil ég lýsa því yfir, að ég get ekki orðið við þeirri ósk. Ég veit ekki, hvort það er rétt að ræða um þetta atriði áður en málið fer til n., en ég mun ræða við n., ef hún óskar að ræða málið áður en það er afgr. En á þessu stigi málsins get ég ekki lofað að taka till. til baka að fullu og öllu og mun halda við hana við 3. umr.