28.04.1950
Efri deild: 95. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 12 í C-deild Alþingistíðinda. (2573)

104. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson):

Herra forseti. Ég lofa að teygja ekki lopann að óþörfu um þetta mál. Aðallega hef ég verið að kanna hugi manna varðandi frv. þetta, ég segi hugi manna, því að ég þarf ekki að segja kvenna eftir það, sem fram hefur komið hjá hv. 8. þm. Reykv. Það virðist vera orðin árátta á mönnum hér, þótt hjartahreinir séu, að hlaða svo miklum og mörgum pinklum á frv. þetta. að það hverfi raunverulega, eins og það var upprunalega. Þetta frv. var aðallega undirbúið af Skógræktarfélagi Íslands, og því ætti að vera kunnugt. hvað skógræktinni er bezt til framgangs. Skógræktarfélagið vill auðvitað fara þær leiðir sem beztar eru til að klæða landið skógi. Nú segja hv. þm. Barð. og hv. 4. þm. Reykv., að þetta horfi öðruvísi við það megi alveg eins koma með svipaðar till. varðandi t. d. súrheysgryfjur, tóftir eða kornakra. Ég held, að hv. 4. þm. Reykv. ætti að muna, að í gær samþykkti hann með sinni hægri hendi að hækka styrkinn til súrheysgryfja. Ekki er nema gott eitt um það að segja. En ég sé ekki, hvaða munur er á því, þótt inn í ríkissjóð séu greiddar 100 kr. og síðan teknar þaðan út, eða að inn í ríkissjóð séu greiddar 1.000 kr. og síðan teknar út 1.000 kr. Auðvitað kemur þetta í sama stað niður, og ætti hver maður að skilja það. Það er rökvilla, er þessir hv. þm. bregða mér um, að súrheysgryfjustyrkurinn komi ekki þeim til góða, er þær byggja, og á sama hátt kemur skattaívilnun þeim til góða, er skógklæða jörð sína. Hv. þm. Barð. sagði, að það væri smásálarskapur að biðja um aura til að gróðursetja nokkrar hríslur. Þetta er nú sá góði hugur, sem þessi hv. þm. ber til skógræktarmálanna. Ég held, að það kosti ekki svo lítið að gróðursetja hríslur í 6 hektara lands, en það má vera, að þessa hv. þm., eða a. m. k. hv. 4. þm. Reykv., muni ekki mikið um þessa aura, en aðra getur munað um það. Og svo er einnig að líta á hitt, að jafnvel þótt hér sé ekki um mikið fé að ræða, þá er sú hlið ekki veigaminni, er mætti verða til þess að örva menn til að fást við skógrækt. Þetta er ekki lítilvægt.

Nú hafa alls komið 4 brtt. fram við þetta frv., og ég held, að heppilegra muni vera að fresta umræðum, svo að menn geti áttað sig á þessu, og taka málið svo fyrir síðar. Þar sem fyrri flm. frv. er ekki við, en væntanlega getur hann verið viðstaddur, ef frv. verður rætt síðar, þá er enn meiri ástæða til að fresta því, enda veitir mér ekki að hafa mitt lið búið til vopna, einkum eftir að skjaldmærin þeysti fram á völlinn.