09.05.1950
Efri deild: 103. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 15 í C-deild Alþingistíðinda. (2584)

104. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Forseti (BSt):

40. gr. þingskapa hljóðar svo: „Frumvörp, hvort heldur eru frá stjórninni eða þingmönnum, svo og tillögur til þingsályktunar og breytingartillögur, má kalla aftur á hverju stigi umræðu sem vill. En heimilt er hverjum þingmanni að taka það jafnskjótt upp aftur á sama fundi. Fyrirspurn má og afturkalla.“

Samkvæmt þessu er hv. flm. heimilt að kalla þetta frv. aftur, svo er og hverjum hv. þm. heimilt að taka frv. upp aftur á þessum fundi.