27.04.1950
Neðri deild: 89. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 33 í C-deild Alþingistíðinda. (2629)

141. mál, verðjöfnun á benzíni

Flm. (Jón Gíslason):

Herra forseti. Það eru nú þó nokkrir búnir að tala um þetta frv. okkar hv. þm. V-Húnv. um verðjöfnun á benzíni. M. a. hefur talað hv. 8. landsk. þm., sem flytur ásamt öðrum í Sþ. till. til þál., sem fer í svipaða átt. Í þessari þáltill. er hráolía líka tekin með. Við, sem unnum að þessu frv., höfðum þessa till. til athugunar, sem sé það að fara líka fram á verðjöfnun á hráolíu. En okkur virtist, að á því mundu verða nokkuð miklu meiri erfiðleikar, og vildum sjá til fyrst með benzínið í þessu efni, hvernig það reyndist að hafa það svona með það. Hv. 1. flm. þáltill. eggjaði á það að fara heldur þá leið, sem í þáltill. er farið fram á, og taldi hana heppilegri og happasælli. En ég vil benda á, að þáltill. gengur svo skammt í þessum efnum, að hún réttir á engan hátt hlut þeirra manna, þó að farið væri eftir henni, sem erfiðleikana hafa mesta. Hún gengur út á að jafna verðið á benzíni og hráolíu aðeins á þeim stöðum, þar sem olíutankskip geta afgreitt olíu í olíu- eða benzíngeyma, en einmitt á þeim stöðum er það þannig, að verðmunur á benzíni þar annars vegar og í kaupstöðum hins vegar er minnstur. Verðmunurinn á benzíni er mestur, frá því sem er í kaupstöðunum, þar sem varan er flutt lengra út á landið. Þess vegna ná ákvæði þáltill. alls ekki þeim tilgangi að bæta á nokkurn hátt hlut þeirra, sem lengst eiga heima frá kaupstöðunum, hvorki til að lækka benzínverðið né til samræmingar á benzínverðinu á nokkurn hátt, og eru því ekki á neinn hátt þeim til hagsbóta, sem versta hafa aðstöðuna í þessum efnum.

Þá talaði hv. 5. þm. Reykv. um, að benzínskatturinn gengi til akvega og samgöngubóta úti um land. Já, rétt er það. Hann gengur það og gengur það ekki. Það er gert ráð fyrir, að hann geri það. En það er ekkert bundið í því efni við sömu upphæð að neinu leyti, sem fer til akveganna, þó að einhverju leyti sé tekið tillit til hans. En kaupstaðabúar þurfa líka mikið að nota akvegina úti um landið, því að mér þykir líklegt, að þeim þyki ekki nóg að hafa bifreiðarnar til þess að aka þeim um götur bæjanna, heldur vilji þeir líka koma út á landið á bifreiðum sínum og aka þar um akvegina, sem er ekki undarlegt. En þeir, sem lengst búa úti á landinu, verða nauðbeygðir til þess að nota þessa vöru margfalt meira en þeir, sem betri hafa aðstöðuna hvað aðdrætti snertir. Og þarna kemur mikill aðstöðumunur fram. Það mun og láta nærri, að tveir fimmtu hlutar benzínverðsins séu óbeinir skattar í ríkissjóðinn, og það er svo með þá skatta eins og aðra skatta, að þeir koma ákaflega misjafnt niður og að sumu leyti óréttlátlega, þar sem þeir bitna mest á þeim, sem mest þurfa að nota hina skattlögðu vöru. Og þeir, sem mest nota benzín, þurfa með benzínskattinum að borga hæstan skattinn tiltölulega á við aðra í ríkissjóðinn með þessu móti, en þetta frv. miðar að því, að þetta verði jafnað niður á þjóðfélagsþegnana.

Þá talaði hv. þm. Siglf. (ÁkJ) mikið um það, hversu mikið ríkisskrifstofubákn þetta mundi verða, ef eftir ákvæðum frv. ætti að fara. Ég játa, að ég þekki ekki vel til vinnubragða á ríkisskrifstofum í Reykjavík og annars staðar. Ég býst þó við, að þau séu frekar léleg. En ég hefði ekki haldið það, að þetta mundi verða meira verk, en handa einum sæmilegum starfsmanni að vinna. Olíufélögin eru ekki svo ýkja mörg, sem þarf að skipta við, og það eru þau, sem yrði við að skipta í þessu. Af þeim yrði verðjöfnunargjaldið innheimt, og það eru þau, sem flytja olíuna út um landið, og ég hygg, að til þess að framkvæma þetta, þyrfti ekki mikið skrifstofubákn. Ég hygg, að þetta yrði ekki of mikið verk handa einum manni, og í annað eins hefur nú verið lagt í sambandi við skrifstofuhald.

Ákvæðið um 10 aura gjaldið, sem talað er um í frv., ber alls ekki að taka svo, að það sé fastákveðið verðjöfnunargjald. Þetta er bara hámark verðjöfnunargjaldsins, sem þarna er til tekið, þannig að það verði lögtekið, að gjaldið megi ekki setja hærra. Auðvitað er gengið út frá því, að verðjöfnunargjaldið sé ekki hærra, en það nauðsynlega þarf að vera. Vel getur verið, að það megi vera miklu lægra, en þetta.

Þá talaði hv. 2. þm. Reykv. um það, að fyrir okkur flm. frv. hlyti það að vera aðalatriðið að fá benzínverðið lækkað til þeirra, sem þurfa nú að kaupa það dýrustu verði hér á landi. Já, það er aðalatriðið, að jafnrétti í þessu gildi meðal landsmanna, í þessu verði og þessum skatti, sem greiddur er í ríkissjóðinn í benzínverðinu. Því að það er ekki einungis þannig, að þeir, sem lengst búa frá kaupstöðunum, noti mikið af benzíninu, heldur verða þeir að kaupa það dýrast, og greiða því í ríkissjóðinn með benzínskattinum langmest af þjóðfélagsþegnunum.

Ég vonast eftir, að hv. n., sem fær þetta mál til meðferðar, athugi þetta og leiti upplýsinga um málið, og ég vona, að hún flýti afgreiðslu þess eftir föngum, til þess að málið geti orðið afgreitt á þessu þingi, sem er nú orðið langt liðið á.