22.11.1949
Neðri deild: 3. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 41 í C-deild Alþingistíðinda. (2644)

1. mál, aðstoð til síldarútvegsmanna

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson):

Herra forseti. Þetta frv. er flutt til þess að uppfylla ákvæði 28. gr. stjskr. og til staðfestingar á bráðabirgðal., sem nauðsyn þótti til bera á síðastl. sumri, að sett yrðu. Greiðslufrestur á skuldum útgerðarmanna, er síldveiðar stunduðu sumarið 1948 og aðstoð höfðu fengið samkv. 2. gr. l. nr. 85 15. des. 1948, rann út 1. júlí þ. á. Með því að skuldaskilum, sem þar var um að ræða, var þá engan veginn lokið, heldur þau miklu frekar skammt á veg komin, þótti ófært, að þessi frestur félli niður 1. júlí 1949, og varð það að ráði, til þess að trufla ekki síldveiðar viðkomandi manna og atvinnuathafnir á síldveiðitímabilinu, að framlengja þennan frest til 15. okt. En til þess þurfti að setja þau bráðabirgðalög, sem hér er nú leitað staðfestingar hæstv. Alþingis á.

Ég ætla, að ekki beri nauðsyn til þess að tala meira fyrir þessu máli. En ég vil mælast til, að frv. þessu verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. fjhn.