05.01.1950
Neðri deild: 22. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 44 í B-deild Alþingistíðinda. (265)

81. mál, ríkisábyrgð á útflutningsvörum bátaútvegsins o.fl.

Forsrh. (Ólafur Thors):

Herra forseti. Ég þarf ekki að fara mörgum orðum um það, sem hv. 1. þm. S–M. (EystJ) sagði, enda geri ég ráð fyrir að, að því er varðar einstök atriði um skilning á einstökum greinum í frv., þá muni atvmrh. svara því. Ég hefði hins vegar ekki talið mér skylt, a.m.k. ekki á þessu stigi málsins, að hafa bein afskipti af umr., ef ekki í upphafi máls hv. 1. þm. S–M. hefðu fallið nokkrar fullyrðingar, sem ekki eiga við rök að styðjast. Hv. þm. sagði, að það hefðu, að mér skilst á öndverðu þingi, verið gerðar tilraunir. og að ég held undir forustu Framsfl., til þess að ná samkomulagi um framkvæmd einhverra víðtækari ráðstafana, en þessi bráðabirgðalausn ber með sér. Ég efa það ekki, að það hafi fyrir hv. þm. vakað að gera þessa tilraun, en ég tel honum ekki heimilt að skýra Alþ. frá því, að þær tilraunir hafi raunverulega strandað á öðrum flokkum, a.m.k. viðurkenni ég það ekki hvað Sjálfstfl. áhrærir. Eins og þm. man, var Sjálfstfl. um það spurður, í fyrsta lagi, hvort hann vildi fallast á þau ágreiningsmál, sem Framsfl. hefði gert að skilyrði fyrir áframhaldandi samstarfi á s.l. sumri, og í öðru lagi var hann spurður um það, hvort Sjálfstfl. mundi fyrir sitt leyti vilja lofa að vera samþykkur nýjum tekjuöflunarfrv. til þess að halda áfram uppbátaleiðinni — ekki hætta við hana —, ef Alþfl. væri ekki fáanlegur inn á aðrar leiðir. Í þriðja lagi þá var Sjálfstfl. tilkynnt, að þess arna væri af honum óskað í því skyni, að Framsfl. gæti myndað stjórn, undir sinni forustu, með Alþfl., án þátttöku Sjálfstfl. Sjálfstfl. svaraði, að hann teldi, að sum ágreiningsmál Framsfl. væri vel hægt að fallast á, eins og hann alltaf sagði og kom fram í svörum fulltrúa Sjálfstfl. í fyrrv. ríkisstj. á s.l. sumri. Á önnur vildi hann ekki fallast. Í öðru lagi sagði Sjálfstfl., að hann vildi sjá þessi tekjuöflunarfrv., sem hann átti að samþ., og að öðru leyti bíða með frekari umsögn, þar til lengra væri komið samningum milli þeirra flokka, sem áttu að standa að ríkisstj. Allt þetta liggur fyrir upplýst af formanni Sjálfstfl., af formönnum annarra flokka og í opinberum skýrslum. Ég vil þess vegna ekki viðurkenna það, að af hendi Framsfl. hafi alvarlegar tilraunir verið gerðar til þess að ná samstarfi, a.m.k. ekki við Sjálfstfl., um lausn dýrtíðarmálanna á öðrum grundvelli, en með áframhaldandi uppbótum. En það er einmitt það, sem Framsfl. spurði um, hvort Sjálfstfl. væri reiðubúinn fyrir sitt leyti að tryggja tekjur til þess að halda áfram niðurgreiðslum, ef Alþfl. væri ekki fáanlegur inn á aðrar brautir.

Hv. 1. þm. S–M. hefur æ ofan í æ og nú síðast í þessari ræðu sveigt tal sitt að mér fyrir það, að ég hafi ekki gert mér nægilega ljóst, hvernig ástandið var í atvinnu- og fjárhagsmálum þjóðarinnar, og telur sig sjálfsagt hafa vitað það miklu betur, og er það kannske eðlilegt, þar sem hann var í stj. En það er þó sannleikur, að á öndverðu þessu þingi er hann að leita hófanna við mig um það, hvort ég vilji halda áfram tekjuöflun til áframhaldandi uppbóta. Ég skal ekki gera þetta að frekara ágreiningsefni. Þetta liggur skjallega fyrir, og mér finnst ekki rétt, að þær staðreyndir séu brenglaðar hér, af því að það liggja fyrir yfirlýsingar formanna allra flokkanna, sem um málið sömdu.

Ég vil svo aðeins segja það, út af þeim ummælum í minn garð, að ég hafi ekki gert mér fyllilega ljóst, hvernig ástandið var, að ég vil minna á, að ég bað þennan hv. þm. að segja frá sínu brjósti, hvernig þetta væri, áður en ég minntist á það, en hann gerði það ekki. Það er nú aukaatriði að vera að deila um þetta, en er samt tæplega hægt fyrir mig að þegja við æ endurteknum staðhæfingum í þessu efni.

Hv. þm. sagði, að það hefðu verið hreinar tylliástæður að biðja um frest í málinu til þess að kynna sér nánar allar aðstæður. Ég veit, að þessi hv. þm. þekkir það eins vel og ég, að eftir að fram eru komnar kröfur útgerðarmanna, verður ríkisstj. að hafa nokkurn tíma til að kynna sér, á hvaða rökum þær eru reistar, og þreifa sig áfram og semja sig áfram. Þegar ég fyrir jólin sagði, að ég væri í vafa um, hvort auðið yrði að bera fram bráðabirgðaúrlausn í málinu eða hvort við teldum okkur neydda til að halda útveginum í höfn, þrátt fyrir þann skaða, sem af því mundi leiða, þar til við teldum okkur færa um að bera fram úrræði til endanlegrar lausnar, þá meinti ég það, að ég vildi fyrst og fremst rannsaka, hvaða afslátt væri raunverulega hægt að gera og fá frá þeim till., sem L.Í.Ú. hafi samþ., en fundi þess var þá nýlokið. Og mér finnst, að reynslan hafi sannað, að þörf hafi verið á þessum drætti. Útgerðarmenn voru þá með kröfur um kr. 1,04 fyrir kg af fiski, en ríkisstj. hefur lagt til, að greiddir yrðu 75 aurar, að viðbættum þeim fríðindum, sem veitt voru einnig af hendi fyrrv. ríkisstj. í 5. gr. ábyrgðarl. frá í fyrra og einnig í 5. gr. þessa frv., sem hér liggur fyrir. Ég veit, að ef hv. 1. þm. S-M. vill mæla af sanngirni, þá játar hann, að það er ekki von, að þegar ríkisstj. hafa borizt þessar till. ýmist þann 15. eða 19. des., að hún treysti sér þá til að leggja fram og knýja gegnum Alþ. skynsamlegar till., sem í senn bera með sér, hvað hún telur nauðsynlegt að gera, og líka fela í sér líkur fyrir því, að útgerðin mundi hefjast handa. Og þó að ég megi ekki fullyrða, að það frv., sem hér er til umr., tryggi það, að útgerðin hefjist, þá hef ég miklar vonir um það, þegar með eru tekin þau fríðindi, sem fyrrv. ríkisstj. veitti útveginum og hv. þm. gerði að umræðuefni, og kannske þá með einhverjum viðbótum, sem mér er ekki ljóst til fulls, hverjar þyrftu að vera. Ég vil þess vegna á engan hátt viðurkenna, að þessi umhugsunarfrestur ríkisstj. hafi verið til skaða, og ekki heldur, að hann hafi orsakað neitt tjón. Ég veit ekki betur en að þeirri útgerð hafi verið haldið uppi, sem stunduð hefur verið fyrir Vesturlandi og annars staðar, og allir þeir farið á sjó, sem hafa tilhneigingu til þess haft. Ég vil minna á það sem algilda staðreynd, að enda þótt l. um þetta efni væru sett á Þorláksmessu 1948, var ekki búið að ganga frá málinu, þannig að útgerðin vildi sætta sig við það, fyrr en 11. jan. í fyrra, svo að ef við höfum bakað bátaútgerðinni tjón og þar með þjóðinni, þá er fyrrv. ríkisstj. undir sömu sökina seld, en ég hygg, að hvorug stj. sé verð ámæla í þessum efnum.

Hv. þm. vék því næst að því, að það þyrfti að skipta þessu frv. í tvo kafla, og ég tel það alveg rétt, nefnilega þann kafla, sem hnígur að því, að útvegurinn fái tryggingu til 1. marz, og svo hitt, sem tekur við þar á eftir, ef gegn vonum stj. ekki verður búið að setja heildarlöggjöf 1. marz. Ég er honum að mörgu leyti sammála um ýmislegt, sem hann sagði. Ég vil ekki leyna því, að ríkisstj. hafði ríkan áhuga fyrir því að geta miðað allar sínar till. eingöngu við 1. marz og þurfa ekki að ganga lengra. Ástæðan fyrir því, að hún gekk lengra, er sú, að útgerðin hefur haldið því mjög fast fram við ríkisstj., að hún teldi sér ekki fært að hefjast handa, nema því aðeins, að þetta viðbótarákvæði væri í l. Ég verð að viðurkenna haldgæði þeirra raka, sem útgerðarmenn hafa fært fram fyrir þessu. Þeir segja: Ef við byrjum á útgerð og það hendir okkur svo, að Alþ. fæst ekki til að gera neinar heildarráðstafanir, þá stöndum við á miðri vertið algerlega tryggingarlausir og án þess að okkur sé mögulegt að stöðva útgerðina. Þeir, sem kunnugir eru útgerð, vita, að það er ákaflega mikið rétt í þessu, því að það er mjög miklum vandkvæðum bundið fyrir útgerðarmenn, ef þeir hafa á annað borð hafið vertið, að stöðva hana 1. marz. Og það verður að viðurkenna, að það er viss sanngirni, sem mælir með því, að ef Alþ. fæst ekki til að gera skynsamlegar framtíðarráðstafanir í þessum efnum, þá hangi útvegurinn ekki alveg í lausu lofti. Það er viðurkenning á þessu sjónarmiði, sem felst í 12. gr. l. Ég skal játa það, að ég hefði óskað, að sú grein hefði ekki þurft að vera í frv., og þá í fullu trausti þess, að Alþ. hefði fengizt til að setja heildarráðstafanir. En ég vil leyfa mér að vona, að þingið verði búið að setja heildarlöggjöf um þetta fyrir þann tíma, svo að ekki þurfi til þeirrar greinar að grípa. — Hv. þm. sagði réttilega, að ríkisstj. hefði marglýst því yfir, að hún væri andvíg uppbótaleiðinni. Og hún er það og á því hefur engin breyting orðið og verður ekki. Hvernig stendur þá á því, segir hv. þm., að ríkisstj. ber fram till. um uppbótaleiðina? Ríkisstj. gerir það ekki. Við berum fram till. um bráðabirgðalausn, en við boðum ný úrræði. Hins vegar má segja á þessa leið: Útgerðin verður að halda áfram með einhverjum hætti, í fyrsta lagi. Í öðru lagi: Við viljum ekki halda uppbótaleiðinni. Við berum þó fram bráðabirgðalausn til þess að forðast óþarfa tafir á útgerðinni, og við berum einnig — og það er aðalatriðið — áður en langt um líður, fram aðrar leiðir í málinu. Hins vegar verður að játa, að ef Alþ. fellir þær till. og kemur sér ekki saman um neinar aðrar, þá er enginn okkar þm., sem ætlast til þess, að útgerðin missi alla ábyrgð 1. marz, ef þingið setur enga heildarlöggjöf um málið. Ég hef orðið að beygja mig fyrir útgerðarmönnum. Ég verð að játa það, að ég veit ekki um einn þm. úr neinum flokki, sem gengur út frá því, að það sé eðlilegt, að útgerðin missi alla ábyrgð 1. marz og fái ekkert í staðinn. En ég vil leyfa mér að minna á það, að þó að svo ógiftusamlega takist, að ekki verði búið að setja heildarlöggjöf fyrir 1. marz, þá er það engan veginn tilgangur, hvorki frv. né ríkisstj., að ákvæði 12. gr. skuli um fram allt gilda til vertíðarloka. Um þetta er sagt í 12. gr., með leyfi hæstv. forseta: „Nú verður ekki fyrir lok febrúarmánaðar 1950 sett löggjöf, er leysi til frambúðar rekstrarvandamál bátaútvegsins, að dómi ríkisstjórnarinnar, þá framlengist gildi laga þessara þar til slík löggjöf verður sett, þó ekki lengur en til 15. maí 1950.“ Með öðrum orðum, hvaða dag sem Alþ. ber gæfu til að setja heildarlöggjöf í þessum efnum, þá eru þessar vandræðaráðstafanir, þessar troðnu slóðir og gömlu leiðir, sem allir eru orðnir þreyttir á að ganga, úr gildi felldar. Og ég vil segja hv. þm. það, að ég vildi vona, að hann og hans flokkur geti átt samleið með Sjálfstfl. og helzt fleiri mönnum hér á þingi um einhver samtök undir forustu nýrrar stjórnar, til þess að fá varanlega lausn á þessu máli. Ég hygg, að við séum allir orðnir meira og minna sannfærðir um það, að það verði ekki til langframa haldið áfram eins og gert hefur verið. Ég hygg, að við séum að fá í æ ríkari mæli sannfæringu um það, að ef uppbótaleiðin verður enn farin á árinu 1950, þá leiðir það til þess, að það verða allar sömu þarfir fyrir nýjar tekjur um næstu áramót eins og eru nú. Ég get fullvissað hv. þm. um það, að sá dráttur, sem er á því, að Sjálfstfl. beri fram sínar till. hér, stafar ekki af því, að Sjálfstfl. sé hræddur við að leggja fram sínar till. Ég vona, að ef Alþ. fellir ekki stj. mjög bráðlega, þá beri Sjálfstfl. gæfu til þess að bera fram till.; sem hann þarf ekki að vera hræddur við að sýna. Það eru fleiri en hv. 1. þm. S-M., sem hafa áhyggjur af því, hvernig ástatt er, og það eru fleiri en hann, sem sjá, að það verður að gera einhverjar varanlegar ráðstafanir og leggja inn á nýjar brautir. Og það er ekki neitt frumlegt hjá Sjálfstfl., þó að hann sé að tala um þetta. Ég ætlast ekki til, að menn falli fram og tilbiðji Sjálfstfl., þó að hann geri þessar leiðir að umræðuefni, sem hv. þm. S-M. og margir aðrir hafa gert að umræðuefni. Ég vil losa mig og minn flokk undan því ámæli, að við séum nokkuð hræddir við að bera fram till. Hann veit svo vel, að enginn þarf að skammast sín fyrir það á þessum tímum, undir þessum alvarlegu kringumstæðum, að bera fram till., sem miða í einlægri viðleitni að því, að leysa vandann og vísa á nýjar brautir. Mér virðist sú mynd alveg rétt, sem hv. þm. S-M. að lokum dró upp í ræðu sinni. Sú lýsing, sem hann gaf af ástandinu, er rétt og sýnir, að bráðabirgðalausn þessi getur ekki verið varanleg lausn. Sú mynd, sem hv. þm. S-M. dró upp og margir aðrir hafa dregið upp, sannar, að það verður að leggja inn á aðrar brautir. Og það er þess vegna lífsnauðsyn fyrir þjóðina, að bornar verði fram till. um aðrar lausnir í þessum málum og Alþ. beri gæfu til að sameinast um þær framtíðarlausnir. Það hefur af hendingu orðið hlutskipti Sjálfstfl. að fara með ríkisstj. og hafa forustu í þessum efnum. Eins og ég sagði áðan, mun Sjálfstfl. hiklaust leggja fram sínar till., þegar hann telur sig hafa fengið hæfilegan tíma til að skoða þær till., sem nú eru í deiglunni. Hv. 1. þm. S-M. hefur oft staðið að flutningi vandasamra till. og hann veit, að það þarf margt að athuga, enda verður því ekki með sanni neitað, að úr því að á annað borð var talið kleift að bera fram till. um bráðabirgðalausn, þá er það ekki aðalatriði, hvort till. koma vikunni fyrr eða seinna. Ef útgerðin ætti að bíða, þá væri það aðalatriði, en það er ekki sama aðalatriðið, úr því að á að leysa vandann í bili til bráðabirgða.

Ég vil svo, eins og ég sagði í upphafi, ekki á þessu stigi gera einstök atriði að umræðuefni. Ég mun ekki svara þeim fyrirspurnum varðandi tekjuöflunina og fleira, sem fram komu í ræðu hv. þm., vegna þess að hæstv. atvmrh. mun gera það. Ég skal aðeins upplýsa tvennt. Fyrsta: Ég hygg, að það séu á nokkrum misskilningi byggðir hans útreikningar um þá fjárhæð, sem aflast mundi í ríkissjóð samkv. 14. gr. frv. Í öðru lagi vildi ég varðandi hrognapeningana aðeins segja það, að ríkisstj. mun að sjálfsögðu telja sig tilneydda að sigla þar í kjölfar annarra, og hygg ég, að ef við berum gæfu til að finna framtíðarlausn, þá skipti það ekki eins miklu máli nú eins og áður. Ég hef átt þátt í því að lögleiða þessa hrognapeninga, en ég hygg, að það væri ekki ástæða til að vekja um þetta meiri deilur en áður, nema síður sé, af því að það er að sjálfsögðu tilgangurinn að afnema þau hlunnindi, þegar okkur tekst að ná heildarsamkomulagi, og ég skal enda orð mín á því, að ég ætla að trúa því, þar til annað reynist, að þó að ýmislegt beri á milli, þá beri Alþ. gæfu til að setja um þessi efni einhverja þá heildarlöggjöf, sem lengur verði við unað og til meiri lukku leiði, en þessar troðnu slóðir. Ég endurtek það, að ríkisstj. mun gera sína skyldu og bera fram leiðir, þegar hún er búin að hafa þann tíma, sem ekki er hægt að neita henni um. Og ég vil beina því til hv: 1. þm. S-M., að það er a.m.k. efnismunur á því, hvort verið er að leysa höfuðstefnu málsins eða hvort menn eru að kynna sér ýmis vandamál, sem eru undanfari að till. í lagaformi. Ég get ekki neitað því, að mér sýnist ekki eftir kosningunum í haust, að líkur séu til, að vandinn leggist harðar á Sjálfstfl. en aðra flokka, þó að hending réði því, að svo hefur farið.