22.11.1949
Neðri deild: 3. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 46 í C-deild Alþingistíðinda. (2670)

12. mál, samkomudagur reglulegs Alþingis 1949

Forsrh. (Stefán Jóh. Stefánsson):

Herra forseti. Á síðasta Alþ. var, eins og venja hefur verið hin síðari ár, ákveðið með l., að Alþ. skyldi koma saman tiltekinn dag, nema forseti Íslands hafi kallað það saman til fundar fyrr á árinu. Og í þessum l. var gert ráð fyrir því, að Alþ. kæmi saman 11. okt. s. l. Þegar leið á sumarið og í ljós kom, að nauðsyn þótti til bera að rjúfa þing og að kosningar yrðu ákveðnar 23. okt. og næstu daga, var augsýnilegt, að Alþ. gæti ekki komið saman til fundar á þeim tíma, sem gert var ráð fyrir í l. frá síðasta Alþ., og bar því brýna nauðsyn til að gefa út bráðabirgðalög um, að Alþ. kæmi saman síðar, en ákveðið hafði verið. Var 14. nóv. valinn sem samkomudagur Alþ. á þessu ári, og miðað við, að þá væri kosningum, atkvæðatalningu og ákvörðun landskjörstjórnar um úthlutun uppbótarþingsæta lokið og auk þess nægur fyrirvari fenginn til að boða þingmenn til þingsetu. Þessi bráðabirgðalög voru því gefin út vegna þingrofsins, og þarf ég ekki nánar að skýra þau.

Ég vil leggja til, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. allshn.