21.02.1950
Neðri deild: 49. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 56 í C-deild Alþingistíðinda. (2694)

37. mál, sveitarstjórar

Stefán Jóh. Stefánsson:

Herra forseti. Aðeins örfá orð til þess að láta í ljós ánægju mína yfir því, að hv. heilbr.- og félmn. hefur tekið þetta mál til rækilegrar athugunar og komizt að þeirri niðurstöðu, að höfuðatriðin í frv., sem lagt hefur hér verið fram, væru rétt og að framför væri að lögfesta þau.

Um brtt. sjálfrar n. vildi ég segja það eitt, að það er að sjálfsögðu smekksatriði, hvort heppilegt sé heitið á þessum fyrirhugaða starfsmanni að kalla hann sveitarráðsmann eða hvort réttara væri að nefna hann sveitarstjóra, og má vel segja, að það sé meira til samræmis þeim heitum, sem fyrir eru á ýmsum starfsmönnum, að kalla hann sveitarstjóra. En þetta yrði þá þriðji stjórinn, sem settur yrði samkv. l. til að annast þau mál, sem hér koma til greina, þar sem hinir nefnast annaðhvort borgarstjóri eða bæjarstjóri. — Að öðru leyti vil ég einnig segja það um þessar brtt., að vel má vera, og sérstaklega fyrst í stað, að rétt sé að hafa þetta sem heimild, að þetta starf megi setja á stofn, sveitarráðsmannsembættið, en að það sé ekki beint lagafyrirmæli. En það, sem mér þykir bezt, er, að n. hefur haldið fast við það atriði í upprunalega frv. að undirstrika það, að þessi fyrirhugaði framkvæmdastjóri í sveitarmálefnum væri meira embættismaður, en pólitískur starfsmaður hlutaðeigandi sveitarstjórna. Það má vel vera, að seinna meir verði gripið til þeirra ráða að lögfesta eitthvað slíkt um sveitarstjórnirnar. — En þegar ég tala hér um sveitarstjórnir, þá er það í samræmi við það orð, sem lögfest er um bæði bæjar- og sveitarfélög í gildandi l. Það má sem sagt vel vera, að hnigið verði síðar að því ráði að færa þetta á víðara svið, nefnilega til bæjanna. Það er bent á það í grg. fyrir frv., sem samið var af félmrn. á þeim tímum, þegar ég hafði með störf þess að gera, að gripið hefði verið til þess í Noregi, sem reynzt hefði þar vel, að ráða sveitarráðsmenn til að vera aðalframkvæmdastjóra fyrir sveitarfélögin yfirleitt, en að pólitísk stjórn þeirra mála væri meir í höndum oddvita eða forsetá þeirra nefnda, sem hafa með sveitarmálefnin að gera.

Því að mér finnst það eitt af höfuðatriðum þessa máls að gera tilraun um það, hvort hægt væri að ráða til sveitarráðsmannsstarfanna — og þá fyrst um sinn í stærri sjávarþorpunum — mann, sem óháður væri þeim kosningum, sem fram fara á fjögurra ára fresti til sveitarstjórna, að svo miklu leyti sem pólitík við kemur. En að sjálfsögðu er heimilt fyrir hvaða sveitarstjórn sem er að nota sér heimild l. um að segja upp þessum manni með sex mánaða fyrirvara. Ég álít mjög eðlilegt, að þetta fyrirkomulag verði prófað hér, sem reynzt hefur vel annars staðar. Og að sumu leyti má segja, að þetta fyrirkomulag hafi verið upp tekið á sínum tíma, þegar stofnað var borgarritaraembættið hér í Reykjavík, þar sem settur var undirframkvæmdastjóri yfir málefnum Reykjavíkurbæjar, og er gert ráð fyrir, að sá maður, sem gegnir þeim störfum, geti verið fastur starfsmaður, hvað sem líði hlutfallinu milli hinna pólitísku flokka í bæjarstjórninni á hverjum tíma. — Þetta vildi ég segja um brtt. og málið í heild.

En ég vildi svo taka undir aths., sem hv. þm. Borgf. (PO) kom hér með út af 7. brtt. n., að réttara mundi vera að umorða þá brtt. og heimila það aðeins, að sveitarráðsmaður væri kjörgengur til hreppstjórastarfs, ef því væri að skipta, en gera ekki ráð fyrir á þann hátt sem talað er um í 7. brtt., að hann hafi með höndum hreppstjórastarf. Ég vildi mælast til, að n. athugi þetta, því að mér skildist á hv. 3. landsk. þm., að aðalröksemdin fyrir þeirri brtt. væri undirstrikun á því, að sveitarráðsmaður gæti farið með hreppstjóravald, ef því væri að skipta, og það tel ég rétt, að það væri alls ekki útilokað, en þá tel ég, að orða beri það þannig, að heimilt sé, að hann taki að sér hreppstjórastörf, því að ég hygg, að nokkuð sé rétt í því, sem hv. þm. Borgf. og fleiri hafa hér bent á, að þetta sé vafasamt ákvæði, í 7. tölul. brtt. n., samanborið við núgildandi ákvæði um val á hreppstjórum, þar sem það er lögboðið, að gerðar skuli till. um þrjá menn af sýslunefndunum til sýslumanns, sem sýslumaður tilnefni svo einn af til að gegna hreppstjórastarfi. Það mætti segja, að það væri verið að gera tilraun til að rjúfa þessa reglu, ef ákvæði 7. tölul. brtt. n. væru samþ. En ég tel ekki ástæðu til þess.

En ég vil segja almennt um málið, eins og kemur fram í bréfi Sambands íslenzkra sveitarfélaga, sem fylgir áliti n., að það er vissulega kominn tími til að endurskoða heildarlöggjöfina um sveitarstjórnir á Íslandi. Og ég ætla, að einmitt setning þessara l., sem hér er ráðgerð, og sú nýbreytni, sem þar er upp tekin, gæti vel orðið til þess, að hraðað yrði þeirri allsherjarendurskoðun, því að vel mætti svo fara, að mínu áliti, að hér gæti orðið um nokkra fyrirmynd að ræða, sem réttara væri að láta gilda almennar um sveitarstjórnarmálefni, en hér er fram sett. En af því að ég stóð að flutningi þessa frv. og það var undirbúið í félmrn. á þeim tíma, sem ég hafði með það að gera lýsi ég ánægju minni yfir, að n. hefur tekið þannig í málið sem raun ber vitni eftir hennar nál., þar sem mælt er með höfuðatriðum frv., og má vel segja, að meginhlutinn af brtt. n., bæði orðalagsbreyt. og annað, hnigi frekar í rétt horf, því að það má telja rétt að byrja ekki þessa skipun þessara mála með því: að fyrirskipa of stranglega um þessi málefni, áður en reynsla er komin á það, hvernig þetta nýja skipulag reynist, en hafa þetta sem heimildarlög og til leiðbeiningar fyrir sveitarfélög, sem vilja nota sér af þessari löggjöf.

En viðvíkjandi því, sem minnzt hefur verið á í umr., að réttara væri að láta þetta heimildarákvæði einnig ná til hreppa, sem eingöngu eru sveitahreppar, en láta það ekki eingöngu ná til hreppa, þar sem meiri hl. íbúanna er í kauptúni, þá má segja, að það væri skaðlaust, að heimildin nái einnig til þeirra hreppa, sem einungis eru sveitahreppar. En ég ætla, að, þetta fyrirkomulag eigi langbezt við þar, sem hreppsbúarnir búa aðallega í þéttbýli. En svo er högum háttað, að í sumum sjávarþorpa hreppum er einnig nokkuð af jörðum, og það jafnvel líka í kaupstöðum, t. d. í Ólafsfjarðar kaupstað, því að þar eru allmargar jarðir, sem tilheyra kaupstaðnum, sem m. a. kemur til af því, að það svæði, þar sem þær jarðir eru, og algerlega afmarkað af náttúrunnar hendi, á firðinum og svo fjöllum á báða vegu, þannig að hluti af lögsagnarumdæmi kaupstaðarins er einnig sveit, og hefur það ekki komið að neinni sök viðkomandi því, að lögin um kaupstaðarréttindi Ólafsfjarðarkaupstaðar gildi um svæði, sem að nokkrum hluta er í sveit.