21.02.1950
Neðri deild: 49. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 64 í C-deild Alþingistíðinda. (2702)

37. mál, sveitarstjórar

Gísli Guðmundsson:

Ég vil vekja athygli á því, að í l. brtt. á þskj. 377 hefur n. lagt til, að breytt verði heitinu á starfsmanni þeim, sem um ræðir í þessu frv., að í staðinn fyrir, að gert var ráð fyrir, að hann héti sveitarráðsmaður, verði hann kallaður sveitarstjóri. Ég held, að það væri heppilegra að láta þetta óbreytt, þó að það skipti ekki miklu máli. Við höfum svo mikið af stjórum í þessu landi, að það liggur við, að það fari að verða hvimleitt. Hér eru að verða stjórar á öðru hverju strái. Hér eru forstjórar, skrifstofustjórar, verkstjórar, hreppstjórar, skipstjórar, kaupfélagsstjórar, fiskimálastjórar, skipulagsstjórar, allir mögulegir stjórar. Þetta eru þeir stjórar sem mér hefur dottið í hug í svipinn, en sjálfsagt eru þeir miklu fleiri. Ég held, að það sé ekki ástæða til að neinu leyti að fara að fjölga þeim mönnum, sem bera þetta embættisheiti. — Í öðru lagi vil ég benda á, að þarna verða í sama hreppi maður sem heitir hreppstjóri og annar, sem heitir sveitarstjóri, og þá getur þetta hæglega valdið misskilningi, þannig að menn fari að blanda þessum tveimur embættismönnum saman og viti varla, hvor eigi hvort heiti. Ég mun því greiða atkv. á móti þessari brtt. og legg til, að heitið verði látið standa óbreytt, sem gert er ráð fyrir í frv. Það getur verið, að það væri hægt að finna eitthvert betra orð, en þar er stungið upp á, en ég held samt, að það væri ekki til báta að bæta við enn einum stjóranum, því að það gæti valdið miklum ruglingi, eins og ég benti á.