03.03.1950
Efri deild: 68. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 69 í C-deild Alþingistíðinda. (2717)

37. mál, sveitarstjórar

Bernharð Stefánsson:

Virðulegi forseti. Ég held, að það leiki enginn vafi á því, að með þessu sé verið að breyta almennum ákvæðum um skipun hreppstjóra. Það er slæmt, að hv. 11. landsk. þm. er fjarverandi úr d., því að hann kynni að mæla í móti því, þar eð hreppstjórar séu aðstoðarmenn sýslumannanna. Að vísu hef ég ekki sjálfur verið hreppstjóri, en hins vegar hef ég verið aðstoðarmaður hreppstjóra um langt árabil. Mér fyndist það ekki vera nein goðgá, þótt hreppstjóri væri skipaður án samþykkis sýslunefndar, því að ég lít svo á, að sýslun. komi ekki það beint við, hvað gerist í hreppunum hvað varðar þessi mál.