27.03.1950
Efri deild: 81. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 72 í C-deild Alþingistíðinda. (2721)
37. mál, sveitarstjórar
Frsm. meiri hl. (Rannveig Þorsteinsdóttir) :
Herra forseti. Það er út af brtt. hv.: minni hl. n.. sem ég ætlaði að segja nokkur orð. Það er rétt, að meginbrtt. þeirra er það, að breytt verði 1. gr., og ef sú brtt. yrði samþ., þá væri búið að breyta svo mikið frv. í heild, að það mundi vera erfitt að láta það standa að öðru leyti eins og það er. Meginbreyt. væri þessi, ef þetta ætti að gilda um alla hreppa landsins, að þeir mættu ráða til sín sveitarstjóra eftir þessum lögum.
Ég vil bara geta þess, að það, sem liggur til grundvallar þessu frv., er það fyrst og fremst, að þessu starfi sinni ópólitískur embættismaður, sem hafi laun ákveðin í l., og þar af leiðandi er gert ráð fyrir því hér í 3. gr. frv., að laun sveitarstjóra skuli vera ákveðin ekki lægri, en þar segir. Það þykir líka heppilegra, þegar á að fara að ráða menn, sem gegna eigi þessum störfum, að launin séu fyrir þetta ekki svo lág, að aðeins veljist til starfsins lélegir menn, heldur þannig, að þau störf séu vel boðleg vel vinnufærum mönnum. Sama máli gegnir í raun og veru um síðustu málsgr. 3. gr. Hún er þar sett inn til þess að reyna að halda þessu embætti utan við hin pólitísku átök. En samkv. því, sem nú er t. d. í l. um bæjarstjóra.
Þá fellur niður ráðningarsamningur bæjarstjórans um leið og ný bæjarstjórn er kosin. Meiningin með þessu ákvæði hér, að ekki sé skylt að binda ráðningu sveitarstjóra við kjörtímabil hreppsnefndar eða önnur tímatakmörk, er eingöngu sú að gera þetta starf dálítið ákveðnara og meira framtíðarstarf fyrir þann, sem tekur það að sér, heldur en það er, ef starf þessa manns sem sveitarstjóra fellur niður alveg sjálfkrafa við kosningu nýrrar bæjarstjórnar. En þetta aftur fellur undir megintilgang frv., sem er að fá þarna, að svo miklu leyti sem hægt er að stuðla að því með lögum, ópólitískan starfsmann, sem hafi traust út fyrir sinn eigin flokk og sé ekki studdur endilega af ákveðnum meiri hl. í sveitarstjórninni, heldur bara sem starfsmaður við þetta starf. Í sambandi við þetta er það, að uppsagnarfresturinn er hér bundinn við sex mánuði, en ekki kosningar. — Um brtt. við 4. gr., um að síðari málsgr. falli niður, get ég sagt það, að í bæjum a. m. k. koma fyrir mörg tilfelli, þar sem nauðsynlegt er að gera frekari grein fyrir störfunum í þessum ráðningarsamningi, sem gert er ráð fyrir í 3. gr., heldur en í þeirri gr. (3. gr.) er fram tekið. Það er nú ekki gert ráð fyrir, eins og frv. er nú, að ákvæði þess snerti nema sex eða sjö kauptún, og þá sjá það allir, að það fylla ekki marga dálka í Stjtíð. samningarnir við sveitarstjórana hjá þeim. Auk þess er ekki víst, að öll þessi kauptún noti heimildina.
Þá er það 2. málsgr. 5. gr. frv. Það mætast þarna tvö sjónarmið viðkomandi skoðunum meiri hl. og minni hl. n. Og það verður í þessu efni varla hægt að koma við miklum rökum í sjálfu sér. Þarna er bara um að ræða, hvaða reglu menn vilja hafa í þessu, hvort mönnum finnst rétt, að stefnt sé að því að gera þetta embætti eins laust við dægurmálin og togstreitu um þau eins og unnt er og binda þetta embætti frekar starfinu eingöngu. Ég held, að afstaða manna til síðari málsgr. 5. gr. frv. fari alveg eftir þessu. — Og þá er 7. gr., sem hv. minni hl. n. vill fella alveg niður, en sú gr. er beinlínis sett í frv. með tilliti til þeirrar sorglegu reynslu, sem fengin er af viðskiptum bæjarstjóra og bæjarstjórna. Og það eru til ný dæmi í þessu efni um það, að bæjarstjóri hefur verið hrakinn frá störfum fyrir engar sakir, án þess að eiga kost leiðréttingar sinna mála og án þess að nokkur væri til þess búinn að taka við störfum hans. Og ég er hissa á hv. minni hl. n., að hann skuli vilja fella þessa gr. niður alla, því að þó að hv. minni hl. vildi ekki gefa sveitarstjóranum í þessum tilfellum kost leiðréttingar sinna mála, þá átti hv. minni hl. n. að sjá, að nauðsynlegt er, að til sé einhver til þess að taka við störfum sveitarstjóra í þeim tilfellum, sem þarna greinir, því að ef 7. gr. er felld niður, kemur það ekki alveg af sjálfu sér, að oddviti taki við störfum sveitarstjóra, unz ákveðið er, hver taki við þeim. Þetta verður einhvers staðar að standa í l. En nú er það svo, að þegar fyrir átök í bæjarstjórnum er búið að hrekja bæjarstjóra frá starfi, þá er allt í reiðuleysi. Og það er þessi sorglega reynsla af viðskiptum bæjarstjórna og bæjarstjóra í kaupstöðum, sem hefur orðið þess valdandi, að þessi ákvæði eru sett inn, og þetta horfir til hreinna vandræða, eins og nú stendur í bæjarmálum, og það hlýtur fyrr eða síðar að verða að breyta þessu, og þá er eðlilegt, að þessi lög séu ekki samþ. með öllum þeim ágöllum, sem l. um bæjarstjóra hafa, heldur sé reynt að koma í veg fyrir þá galla, sem hafa sýnt sig að hafa verið á l. um bæjarstjóra.