28.03.1950
Efri deild: 82. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 78 í C-deild Alþingistíðinda. (2732)

37. mál, sveitarstjórar

Frsm. minni hl. (Gísli Jónsson):

Út af orðum hv. 4. þm. Reykv. vil ég taka það fram, að ég er með brtt. minni hvorki að gera grín að frv. né heldur þeim breyt., sem á því hafa verið gerðar. En hann er á móti breyt. á frv. vegna þess, að einn ágætur flokksbróðir hans hefur samið það. Hann er í raun og veru sjálfur samþykkur þessum breyt., en er sárt um, að þetta afkvæmi flokksbróður síns skuli ekki vera óbreytt, og þess vegna er hann á móti breyt. á því. Hér er aðeins um það að ræða, að heimilt sé að láta sveitarstjóra að sumu leyti eða öllu annast framkvæmd mála fyrir viðkomandi sveitarfélag. Annars geri ég það ekki að neinu kappsmáli, hvort till. mín er samþ. Það kann ef til vill að vera rétt, að í staðinn fyrir „fer með“ komi: „má fela“ o. s. frv. En í sambandi við þessa till. mína vil ég benda á það, að í sumum hreppsfélögum er t. d. verið að leggja vatnsleiðslur, önnur eru ef til vill með hafnargerðir, og þá kann vel að vera, að þau vilji ráða til sín mann til þess að sjá um þær framkvæmdir. Það getur sem sé verið, að hreppsfélögin vilji ráða til sín menn til þess að hafa á hendi fyrir sig viss trúnaðarstörf, án þess að vilja binda ráðningu þeirra við kjörtímabil, svo að það er ekki ástæða til þess að gera veður út af þessum breytingum.