14.04.1950
Neðri deild: 82. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 80 í C-deild Alþingistíðinda. (2740)
37. mál, sveitarstjórar
Gylfi Þ. Gíslason:
Herra forseti. Hv. Ed. hefur gerbreytt þessu frv. frá því, sem Nd. afgreiddi það. Heilbr.- og félmn. hefur ekki haldið fund síðan frv. var endursent til Nd. Ég teldi mjög æskilegt, að n. fengi tækifæri til þess að fjalla um málið, því að breyt. þær, sem gerðar voru á málinu í hv. Ed., eru allumfangsmiklar. Ég vil af þeim sökum mælast til þess við hæstv. forseta, að hann fresti umr. um málið, svo að n. geti rætt það á næsta fundi sínum, sem verður á föstudag. Það ætti ekki að þurfa að tefja afgreiðslu málsins neitt verulega.