14.04.1950
Neðri deild: 82. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 81 í C-deild Alþingistíðinda. (2741)
37. mál, sveitarstjórar
Forsrh. (Steingrímur Steinþórsson):
Herra forseti. Ég tek undir það, sem hv. síðasti ræðumaður sagði, að umr. verði frestað að sinni. Það er búið að gera verulegar breyt. á frv., frá því sem það var fyrst borið fram, og það svo mjög, að frv. nær tæplega hinum upphaflega tilgangi sínum eins og það nú er. Málið þarf því frekari athugana við, og vil ég beina því til hv. form. heilbr.- og félmn., að n. hafi samband við félmrn., áður en hún afgreiðir málið. Einnig vildi ég hafa tal af n., þegar hún tekur málið fyrir. — Annað var það ekki, en ég ítreka þá ósk, að umr. um málið verði frestað.