07.12.1949
Neðri deild: 8. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 93 í C-deild Alþingistíðinda. (2759)

47. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Gísli Guðmundsson:

Herra forseti. Ég vildi aðeins minna á það í þessu sambandi, að hliðstæðu máli við þetta hefur áður verið vísað til fjhn., en það var frv. til l. um heimild fyrir ríkisstj. vegna lántöku fyrir þá, sem stunduðu síldveiðar á þessu sumri.

Út af því, sem hv. þm. Borgf. (PO) sagði, vil ég taka það fram, að ég mælti ekki á móti því sérstaklega, að aðstoðarlán væru gefin eftir, en ég sagði, að sumar ráðstafanir væru þýðingarmeiri, t. d. þær, sem um getur í 1. gr. frv., þýðingarmeiri t. d. en ráðstafanir 2. gr. Hitt er svo annað, að eftirgjöf lána er vandaverk í framkvæmd. En um þetta skal ég ekki fjölyrða, en vil aðeins skjóta því fram í sambandi við sjóveðin, að þar er um að ræða vafasamt úrræði frá sjónarmiði sjómanna, ef ár eftir ár á að heimila ríkisstj. að innleysa þau. Það mundi ekki flýta fyrir því, að sjómenn fengju kauptryggingu greidda. Annars er það rétt, að svo miklu leyti sem mér er það kunnugt, að ekki mun hafa borið á því eins mjög nú og í fyrra sumar, að kaup síldveiðisjómanna væri ógreitt.