05.01.1950
Neðri deild: 22. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 81 í B-deild Alþingistíðinda. (278)
81. mál, ríkisábyrgð á útflutningsvörum bátaútvegsins o.fl.
Emil Jónsson:
Herra forseti. Hæstv. atvmrh. sagði áðan, um það bil sem hann taldi sig hafa leiðrétt nokkrar tölur úr minni ræðu, að það væri fánýtt að ræða þetta nú, því að hv. n., sem mál þetta fær til meðferðar, mundi athuga þessa útreikninga, og væri því tilgangslaust að ræða þetta nú, og get ég raunar fallizt á þetta sjónarmið, en ég get ekki stillt mig um að gera nokkrar aths. við leiðréttingar hans á orðum mínum.
Það, sem ég gerði, var að draga fram, hve fiskábyrgðin yrði mikil og hins vegar, hver tekjuaukning ríkissjóðs samkv. frv. yrði til að mæta þessari ábyrgð, og skýrði ég frá, hvernig ég hefði komizt að niðurstöðum mínum. Ég gerði ráð fyrir, að fiskframleiðslan yrði 130 þús. tonn, og nú hækkar ábyrgðarverðið um 10 aura pr. kg., þannig að hækkun ábyrgðarverðsins til bátaflotans verður um 13 millj. kr., en hækkunin til hraðfrystihúsanna verður um 5 millj. kr., svo að alls mun hækkunin nema ca. 18 millj. kr. Má vera, að hér sé aðeins of lítið í lagt, en ég get ekki reiknað þetta öðruvísi. Ég gerði ráð fyrir því, að magnið, sem hraðfrystihúsin mundu koma til með að frysta, væri 30 þúsund tonn. Hækkunin til þeirra nemur 20 aurum pr. enskt pund. Það þýðir, að ef framleiðslan er 66 þús. pund, þá hækkar ábyrgðin til hraðfrystihúsanna um 13,2 millj., og að viðbættri ábyrgð á saltfiskframleiðsluna yrði hækkunin þá um 19 millj. kr. í stað 18 millj. kr., sem ég fékk út með hinni aðferðinni. Þetta er ekki hægt að vefengja. Hæstv. ráðh. bar hér allt annað saman, t.d. 5 millj. kr., sem greiddar voru s.l. ár, og þá hækkun, sem breyting á pökkunaraðferðum veldur, en það er ekki hækkun, sem stafar af hærra ábyrgðarverði. Það, sem ég ber saman, er hækkunin á ábyrgðarverðinu annars vegar og tekjur ríkissjóðs vegna frv. hins vegar, og er annað þrisvar sinnum hærra en hitt. Ráðherrann komst að þeirri niðurstöðu, að hækkunin á ábyrgðarverðinu í allt verði 32,5 millj. kr., og er frá því er dregið 5 millj. kr. samkv. 5. gr. og hækkunin, sem stafar af breyttum pökkunaraðferðum, sé ég ekki annað en okkur fari að bera saman, Svo að þetta ber allt að sama brunni. Hækkunin á tekjuskattinum eftir frv. er þriðjungi hærri en þörf er eftir ábyrgðarverðinu.
Þá sagði hæstv. ráðh., að fullyrðing mín um, að þessi tekjuöflun væri algerlega hliðstæð gengislækkun, væri röng, og vildi rökstyðja það með því, að ýmsar vörur mundu verða undanþegnar söluskattinum. Það getur vel verið, að ráðh. hugsi sér slíkar breyt. á frv. í framkvæmd, en þar sem ég hafði ekki annað að álykta eftir en frv. sjálft, þá gat ég ekki gert ráð fyrir slíkum breyt., því að í 14. gr. frv. er gert ráð fyrir 30% söluskatti af allri innfluttri vöru. Í aths. við 14. gr. er að vísu getið um þær undanþágur, sem gerðar voru frá söluskatti í 23. gr. l. 100/ 1948, og jafnvel gert ráð fyrir, að söluskattur verði ekki reiknaður af þeim. En þrátt fyrir það er ég þeirrar skoðunar, að þessi mikli söluskattur verki eins og gengislækkun, því að hann skal innheimtur af flestöllum nauðsynjum fólks og þar af leiðandi enginn, sem losnar við hann. Þessi aðferð er verulega frábrugðin þeirri, sem farin var á síðasta ári, því að þá var aðeins um 6% söluskatt að ræða, en hins vegar lagður hærri skattur á þær vörur, sem almenningur gat verið án. Hér er ekkert um það skeytt, á hverjum skattarnir lenda, heldur lagður jafn skattur á þær vörur, sem enginn getur án verið, og hinar, sem aðeins hinir efnaðri borgarar geta veitt sér. Augljóst er, að slík aðferð getur ekki verið réttlát.
Ég skal ekki fara lengra út í að ræða þetta mál en orðið er, enda hefur það þegar verið gert allrækilega. En mér fannst ég ekki geta látið vera að minnast á ræðu hæstv. ráðh. og mótmæla staðhæfingum hans í sambandi við það, sem ég sagði áðan um tekjuöflunina í sambandi við hækkunina á ábyrgðarverðinu.