05.01.1950
Neðri deild: 22. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 83 í B-deild Alþingistíðinda. (280)

81. mál, ríkisábyrgð á útflutningsvörum bátaútvegsins o.fl.

Áki Jakobsson:

Herra forseti. Ég skal taka það fram, að ég ætla ekki að fara að lengja þessar umr. á þessu stigi málsins. Hæstv. ráðh. hefur reynt að bera á móti þeirri gagnrýni, sem ég bar fram í sambandi við frv. í minni fyrri ræðu, einkum varðandi það, hversu tekjuáætlunin væri allt of há miðað við ábyrgðarverðið. En þetta hefur algerlega mistekizt hjá hæstv. ráðh., því að í stað þess að hnekkja gagnrýni minni hefur ráðh. upplýst, hversu illa þetta frv. er undirbúið og hversu óljóst það liggur fyrir honum sjálfum. Það hefur greinilega komið fram, að ríkisstj. telur sig þurfa 48 millj. til þess að standast kostnaðinn af fiskábyrgðinni til 15. maí, en til þess að mæta þessum kostnaði hugsar hún sér, eftir frv., að leggja á söluskatt, sem nemur 60–70 millj. Afsökun hæstv. ráðh. á þessu ósamræmi er sú, að hér sé um prentvillu að ræða. Hins vegar er það harla nýstárlegt, ef heilar setningar eru ein prentvilla. Auk þessa eru svo þessar áætlanir ríkisstj. rangar, eins og ég drap á í minni fyrri ræðu. — Hæstv. ráðh. minntist á dýrari pakkningar á útfluttum fiski. Það getur vel verið, að þær séu nauðsynlegar, en það liggur heldur ekkert fyrir á mótí því, að hægt sé að fá hærra verð fyrir vöruna í slíkum pakkningum, og tel ég það einmitt mjög sennilegt, og mun ég því geyma frekari umr. um það, auk þess sem ég hef áður drepið á, þar til málið hefur verið athugað í fjhn.

Hæstv. ráðh. sagði, að ég hefði viljað hækka fiskábyrgðina, en fella niður tekjustofna til að mæta henni. Ég hef ekki borið fram neinar till. né kröfur um það efni, enda ekki séð þá reikninga, sem útvegsmenn byggja á kröfur sínar eða þær niðurstöður, sem leiddu til þess verðs, sem ríkisstj. leggur til grundvallar í till. sínum, og get þar af leiðandi ekki dæmt um það mál á þessu stigi. Ég vissi, að útvegsmenn gerðu kröfu til að fá kr. 1,04 fyrir hvert kg af nýjum fiski, og var mér strax ljóst, að sú krafa var allt of há, miðað við ábyrgðarverðið í fyrra. En það, sem ég benti á í ræðu minni og ráðh. virðist hafa misskilið, var það, að úr því að ríkissjóður tæki að sér að ábyrgjast verð á útflutningsvöru sjávarútvegsins til þess að tryggja rekstur hans, þá væri nauðsynlegt að hafa verðið það hátt, að þessi atvinnuvegur yrði starfræktur af fullum krafti. Um tekjuöflunarleiðina hef ég rætt ýtarlega og vil endurtaka, að Sósfl. er andvígur auknum tollum og nefsköttum, vegna þess að þeir hafa þann stóra ókost að auka dýrtíðina og gera vandamálin margfalt torleystari. Ég hélt satt að segja, að nægileg reynsla væri fengin á þeirri leið til þess að sjá, að hún er ekki vænleg til árangurs, því að með auknum tollum og sköttum er almenningur beinlínis knúinn til að krefjast kauphækkana. Svo langt hefur líka gengið á síðast liðnu ári, að stjórnarflokkarnir sjálfir, sem völdu þá þessa leið, samþykktu 20% kauphækkun til opinberra starfsmanna, til þess að þeir gætu mætt þessum auknu álögum.

Hv. þm. Hafnf. (EmJ) var að tala um, að fyrrv. stjórn hefði valið aðra leið, en þetta frv. gerir ráð fyrir, og ekki lagt byrðarnar á almenning. Þetta er ekki rétt, því að hér er ekki gert annað en fimmfalda þann skatt, sem fyrrv. stjórn agði á. Hér er því um sömu leið að ræða, en fastara hert að. Það er hægt að finna aðrar tekjuöflunarleiðir, sem bæði eru hyggilegri og réttlátari, og þær höfum við sósíalistar áður bent á og erum reiðubúnir að gera enn. Annars er raunverulega búið að afla tekna vegna fiskábyrgðarinnar. Það var gert með nýjum sköttum og gjöldum 1947, sem svo hafa gilt áfram 1948, og má þar til nefna tollahækkunina um 65% og þungaskattinn um 200%, auk bifreiðaskatta og benzínskatta. Þetta gaf um 50 millj., og var þá lagt á til að mæta fiskábyrgðinni. Nú hafa fjöldamargir skattar verið lagðir á til viðbótar, svo sem söluskattur af bifreiðum, nýr gjaldeyrisskattur, skattur af innflutningi heimilisvéla og margir fleiri. Alla þessa skatta á nú að framlengja, en auk þess á að leggja á 30% söluskatt, eða um 60–70 millj. kr. skatt á almenning í landinu, og allir eru þessir skattar lagðir á til þess að mæta fiskábyrgðinni, sem stjórnin sjálf telur, að kosti þó ekki nema milli 40 og 50 millj. kr. Ég hef áður bent á þá hættu, sem í því felst að nota útveginn sem skálkaskjól til þess að leggja á óréttlátustu og óvinsælustu skattana, og ég vil endurtaka, að slíkt er ekki til að örva þennan undirstöðuatvinnuveg okkar, sem öll afkoma þjóðarinnar byggist fyrst og fremst á. Ástæðan er sú, að önnur gjöld ríkisins hafa hækkað, t.d. er þar skemmst að minnast þeirrar gjaldahækkunar, sem hér var samþykkt á Alþ. í formi uppbótar á laun opinberra starfsmanna. Ég er ekki að lasta þá ráðstöfun, siður en svo, en tek hana aðeins sem dæmi, af því að hún er hendi næst til að vitna í. Ég sé enga ástæðu til að gera útveginum svo rangt til, þegar ríkið er að afla sér tekna fyrir þessu eða hinu, að segja almenningi, að alltaf sé verið að fara ofan í vasa hans vegna útvegsins. Það er hættulegt að gera almenning graman út í útveginn, og það er rangiátt hreint og beint, þegar álögurnar ganga alls ekki til að styrkja þann atvinnuveg. Það eru alls konar skattar lagðir á almenning undir því yfirskini, að það sé vegna fiskábyrgðarinnar, sem ekki er rétt. Slíkt réttir ekki við fjárhag útgerðarinnar né traust almennings á útveginum. Inn á þetta fór hv. atvmrh. ekki, en var með slettur eins og þær, að ég hefði lagt til, að ábyrgðin hækkaði, en hefði ekki komið með neinar till. um tekjuöflun þar í móti. En þessar álögur eru ekki vegna fiskábyrgðarinnar. Ríkisstj. ætlar bara að nota sér að smeygja þessu í gegn undir því yfirskini, að þeirra sé þörf vegna ábyrgðarinnar, af því að hér á Alþ. er sennilega meiri hluti fyrir henni, að hún framlengist. Þrjátíu prósent söluskattur, sem gert er ráð fyrir í þessu frv., mundi muna tugum stiga í vísitölu, og ef þetta er aðeins forleikurinn að varanlegri lausn Sjálfstfl. á dýrtíðarmálunum, þá er ríkisstj. heilsugóð, ef hún treystir sér til að bera það fram og halda sér við það.

Ég minntist hér stuttlega á markaðsmálin, og mun síðar gefast tækifæri til að ræða þau, svo að ég skal nú ekki vera margorður um þau mál. Ég benti á þá staðreynd, að við gerðum viðskiptasamninga við Sovétríkin, sem gáfu okkur möguleika til sölu á afurðum fyrir 90 millj. kr., en við gátum ekki hagnýtt þá samninga til fulls sökum aflaleysis. En við seldum mikið af hraðfrystum fiski á mjög sæmilegu verði, og þessum markaði er búið að glata. Ég tók fram, að fyrrv. ríkisstj., eða einstakir ráðherrar, hefði virzt bundin við að glata þessum mörkuðum í Sovétríkjunum. Þessi ríki keyptu mikið af okkur, en við minna af þeim. Mismuninn átti svo að greiða okkur í dollurum og pundum, eða frjálsum gjaldeyri. Þetta eru staðreyndir, sem ekki verður í móti mælt. En svo langt var frá, að fyrrv. stjórn færði út þennan markað, að hún glataði honum þvert á móti alveg. Hér á Íslandi voru ráðherrarnir í persónulegu stríði við Sovétríkin og blönduðu þeim og blanda inn í umræður hér á Alþ. við öll möguleg og ómöguleg tækifæri. Það hefur verið sagt jafnvel, að pólitísk skilyrði hafi verið sett í sambandi við þessa samninga, sem allir vita, að er tilhæfulaust með öllu. Þetta eru aðeins staðreyndir. Út af því, sem hv. atvmrh. sagði um orðbragðið, að hann hefði aldrei haft það orðbragð. sem ég talaði um, þá verð ég nú að viðurkenna, að ég man ekki til, að hv. atvmrh. hafi haft það. En flokksbróðir hans í ríkisstj. hefur verið þeim mun duglegri í þessu efni.

Þá kem ég að Sölusambandi íslenzkra fisk-. framleiðenda og ákærunum á hendu því. Ég vil upplýsa hv. atvmrh. um það, að hér er ekki nein kommúnistalygi á ferðinni. Þær ásakanir eru rökstuddar með bréfum og skýrslum frá skrifstofu L.Í.Ú. í London, og hefur þetta allt verið lagt fyrir stjórn L.Í.Ú. Ég fullyrði, að það muni vera eins dæmi, að aðili, sem trúað er fyrir opinberu valdi, eins og S.Í.F., sem er löggiltur einkaútflytjandi á saltfiski, skuli sitja þegjandi undir jafnþungum og rökstuddum ákærum og ekki krefjast rannsóknar af sinni hálfu til að fá áburðinum hnekkt, ef ósannur væri. En ekkert hefur heyrzt um það, að ríkisstj. ætli að krefjast opinberrar rannsóknar. og býst ég ekki heldur við, að þægilegt væri fyrir stjórn S.Í.F., að sú rannsókn færi fram. En það er víst, að ef slíkur aðili sem S.Í.F. væri farinn að leggja kapp á að stinga fé í sinn vasa, hefði hann ekki eins góða aðstöðu til þess og áður að pressa upp verðið á útflutningsvörunum. Ég býst við, að það komi að því, að þetta verði rannsakað, þótt núv. stjórn muni ekki láta gera það, og þá mun koma í ljós, hvað satt er, og þá getur hv. ráðh. geymt reiði sína þangað til. Og ef hann fyndi, að þessi áburður væri alveg órökstuddur og rakalaus, mundi hann sjálfur hreinsa S.Í.F af honum.