05.01.1950
Neðri deild: 22. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 86 í B-deild Alþingistíðinda. (281)
81. mál, ríkisábyrgð á útflutningsvörum bátaútvegsins o.fl.
Atvmrh. (Jóhann Jósefsson):
Herra forseti: Ég hef ráðið það af ræðum þm., að ég hafi tekið hér fullmikinn tíma til svara eða varnar, og þó að ég telji, að ég hafi ekki með góðu móti getað þagað eða sagt minna en ég hef sag!, vil ég nú stytta mál mitt eftir megni.
Ég var feginn að heyra það frá hv. 1. þm. S-M. (EystJ), að hann hefði aldrei hugsað sér að breyta til um frílistahlunnindin. Að því er snertir útreikninga, er við höfum verið hér með og hlustað á, held ég, að það sé næsta fánýtt að pexa um þetta á þessu stigi málsins. Það mál er í þeirra höndum, sem trúandi er til að rannsaka þetta til hlítar, og er því fánýtt að ræða það hér mikið á meðan.
Þá álít ég, að þm. mikli allt of mikið fyrir sér þá skatta, sem hér um ræðir, og er þá vantalið, að ríkisstj. er þar aðeins að benda á þrautaleið, sem hún vonar, að ekki þurfi að fara. En látum það allt gott heita.
Út af síðustu ummælum hv. þm. Siglf. (ÁkJ), um skýrslu trúnaðarmanns L.Í.Ú. og allt, sem þar er tínt saman af óhróðri um S.Í.F. og umboðsmenn þess í öðrum löndum, skal ég segja það, að ég veit ekki betur en stjórn S.Í.F. sé búin að gera ráðstafanir til að fara í mál við þá, sem hafa breitt út þennan óhróður. Mig skyldi ekki undra, þótt hv. þm. Siglf. fengi síðar í því sambandi ástæðu til að standa fyrir öllum sínum klækiyrðum varðandi þetta mál. Stjórn S.Í.F. hefur ekkert að óttast, hún er sér þess ekki meðvitandi að hafa gert neitt rangt. Þar hefur alltaf verið starfað af heilum hug, bæði af fyrrv. stjórnarmönnum, sem ýmsir eru nú látnir, og núverandi stjórn. Hitt er svo annað mál, að þetta er svo sem ekki í fyrsta skipti, sem fyrir kemur hér á Íslandi, að þeir menn, sem standa í fararbroddi fyrir því að koma íslenzkum framleiðsluvörum á framfæri á erlendum vettvangi, megi bíta í það súra epli, að reynt sé að gera þá tortryggilega og helzt að hafa af þeim æruna, ef mögulegt væri. Það er svo fjarri því, að stjórn S.Í.F. vilji halda þessu máli niðri, að hún hefur einmitt samþykkt að höfða mál á þá, sem hafa breitt þennan óhróður út. Það er algerlega að ófyrirsynju að blanda honum inn í þetta mál, og er það aðeins gert í þeim eina tilgangi að ófrægja stjórnarmenn S.Í.F.