25.11.1949
Neðri deild: 5. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 112 í C-deild Alþingistíðinda. (2822)
13. mál, dýrtíðarráðstafanir
Flm. (Sigurður Guðnason) :
Þetta frv. var flutt á síðasta þingi, af mér og hv. þáv. 11. landsk. (HermG), og náði það ekki fram að ganga. Var það flutt snemma á þinginu og lá hér um bil allan þingtímann og var afgr. síðustu daga þingsins. Fannst mér rétt að flytja það aftur og kannske vegna þess fyrst og fremst, að þetta er réttlætismál gagnvart launþegunum, en kannske engu síður fyrir þá óvenjulegu afgreiðslu, sem það fékk á síðasta þingi. Þegar búið var að fella það á síðasta þingi, var ljóst öllum mönnum, að kauphækkunarkröfur voru yfirvofandi hjá öllum verkalýðnum, bæði að því er snerti frjálsa samninga og eins hina, sem höfðu lagalega bundna samninga, og eina skynsamlega leiðin var sú að losna við vísitölubindinguna. Nú var ekki í þessari d. litið svo á þetta mál og frv. fellt í lok 2. umr. En svo skeður það á eftir, þegar búið er að fella þetta frv., 3–4 dögum síðar, að þá kemur einmitt þetta fram, sem við vorum að tala um hér í Sþ. í gær, þessi óvenjulegu vinnubrögð, að stórar fjárhæðir eru ákveðnar með þáltill. til hluta af verkalýðnum, til opinberra starfsmanna, eingöngu vegna þess, að menn, sem hér sitja á Alþingi, vita það, þegar þeir koma út til þessara félaga sinna, að það var ekki stætt á öðru, það mundu engin lög halda því, og svo er þetta enn, og því er frv. flutt aftur, því að það er búið að sýna sig, að þetta hefur ekki verkað eins og til var ætlazt, að lækka dýrtíðina, því að dýrtíðin hefur haldið áfram að vaxa og er nú orðin 337 stig. Þar fyrir utan er viðurkennt, ekki af launþegum og ekki af neinum flokki, heldur af sérfræðingum, sem hafa reiknað það út, að vísitalan sé orðin yfir 400 stig. Og það eru farnar að koma háværar kröfur um leiðréttingu vísitölunnar, að hún sé reiknuð rétt út. Hvernig er þá hægt að standa á því, að þessi vísitala, sem er kannske 100 stigum hærri en sú, sem nú er gefin út, — að launþegar fái ekki að miða kaup sitt við hana?
Þetta mál var svo mikið rætt á síðasta þingi, að ég sé ekki ástæðu til að fara um það fleiri orðum. Ég vona, að þessu frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og fjhn. Ég held, að það hafi verið þar á síðasta þingi.