25.11.1949
Neðri deild: 5. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 115 í C-deild Alþingistíðinda. (2827)

18. mál, hvíldartími háseta á togurum

Flm. (Sigurður Guðnason):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir þessa skýrslu um málið. En ég vil benda á, að það eru tvö sumur síðan samþykkt var að kjósa n., og málið er ekki komið lengra en það, að nú er verið að hugsa um hluti, sem ekki hafa verið undir Alþ., að menn, sem eiga við það að búa, óska kannske ekki einu sinni eftir að koma til Alþ., því að það er svo, að t. d. á togurunum eru kyndarar ekki undir vökulögunum og þeir hafa samninga um 8 tíma vinnu. Ég er á því, eins og kom fram hjá hæstv. forsrh., að það gæti verið spurning, hvort ekki væri betra að gera samninga og afnema þá togaravökul., og ég er sannfærður um, að það væri sjómönnum betra, að lögin væru afnumin, en að halda þeim á þrælaklafa þeirra. Auðvitað eru allir útgerðarmenn og atvinnurekendur ánægðir með að fá Alþ. til að vernda sitt gagnvart þeim mönnum, og ég mun beinlínis bera fram till. um, að togaravökul. verði afnumin, ef frv. verður ekki samþ. Reynslan í þessu máli er sú, að það er betra að hafa þetta í höndum sjómanna en eiga undir Alþ. með sín kjör, og það sýnir kannske ekkert mál betur en þetta, að til Alþ. er ekki að leita um réttlæti og fríðindi fyrir vinnandi stéttir.