29.11.1949
Neðri deild: 6. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 133 í C-deild Alþingistíðinda. (2864)

33. mál, húsnæði o.fl.

Flm. (Einar Olgeirsson) :

Herra forseti. Þetta frv. lá fyrir þessari hv. d. á síðasta þingi. Þá var það flutt af hv. þm. Siglf. eftir ósk Leigjendafélags Reykjavíkur, sem sendi hv. allshn. þessarar d. frv., en n. hafði ekki viljað verða við því að flytja það. Þetta frv. er því kunnugt hv. þdm., og tel ég ekki ástæðu til að fara út í einstök atriði, enda fylgir því skýr greinargerð frá Leigjendafélaginu, og breytingar þær, sem við sósíalistar höfum á því gert, eru óverulegar og gerðar í fullu samkomulagi við stjórn Leigjendafélagsins. Ég vil aðeins geta þess viðvíkjandi ákvæðunum í frv., sem miða að því að lækka leiguna í nýju húsnæði, að þau ákvæði er ekki hægt að framkvæma, nema fólk, sem af litlum efnum ræðst í að byggja yfir sig, njóti betri vaxtakjara og fái lengri lánstíma, en nú er. En það eru mjög margir, sem lent hafa í mjög miklum fjárhagserfiðleikum vegna húsbygginga, og er það ein ástæðan fyrir hinni gífurlega háu húsaleigu í nýju húsnæði. Þess vegna munum við sósíalistar nú alveg á næstunni leggja fram annað frv., sem miðar að því að hjálpa fólki, sem af litlum efnum hefur ráðizt í að byggja sér hús. Eins og hv. þdm. muna, voru hér í hv. d. á síðasta þingi fleiri frv. um húsnæðismál, og býst ég við, að þau komi fram aftur eins og þetta, og er þá rétt, að sú nefnd, sem fær þetta frv. til athugunar, fjalli um þau öll í einu, svo að séð verði, hvaða samkomulag næst um lausn á þessu vandamáli, sem allir eru sammála um að þurfi að leysa, þótt menn greini á um leiðirnar. Legg ég svo til, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. allshn.