06.05.1950
Neðri deild: 96. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 161 í C-deild Alþingistíðinda. (2889)
63. mál, fjárhagsráð
Viðskmrh. (Björn Ólafsson):
Herra forseti. Það hefur undanfarið verið nokkuð rætt um þetta mál hér í hv. d. og jafnvel af vissum flokki lýst eftir skoðun ríkisstj. eða stjórnarflokkanna á þessu máli. Og ekki spurðu þeir, sem það gerðu, vegna þess, að þeir ekki vissu. Stefna Sjálfstfl. í þessu máli hefur aldrei verið neitt leyndarmál og er ekki enn, því að hann hefur alltaf stefnt að því að gera verzlunina frjálsa. Og þær ráðstafanir, sem nýlega hafa verið gerðar í sambandi við gengisbreyt., eiga m. a. að geta stuðlað að því, að þetta megi takast í náinni framtíð. Reynslan verður að vísu að skera úr því, hversu tekst um þessi mál í sambandi við þessa breyt., sem ég gat um. En ég hygg nú, að það komi á daginn, að þetta sé það átak, sem mest stuðli að því, af því sem gert hefur verið í þessum málum, að verzlunin geti orðið frjáls. Annars er það öllum hv. þdm. kunnugt, að flokkar þessir eru mjög skiptir í þessum málum, svo að þar otar hver sínum tota, ef svo mætti segja, og þess vegna er hætta á, þegar deilt er um svo stórt mál eins og þetta, að úr því verði lagavanskapnaður, sem svo ekki er hægt að framkvæma eða fara eftir, og mundi það þá stefna málunum í meira öngþveiti og erfiðleika, en nú er. — Þeir erfiðleikar, sem aðallega steðja nú að í verzlunarmálunum, er sá mikli skortur, sem er á erlendum gjaldeyri. Þarf ekki að skýra það mál frekar fyrir hv. þdm. En útlitið á því sviði er næsta geigvænlegt, og hefur aldrei, svo að ég viti til, verið jafnsvart útlit í þeim efnum og nú er um stund a. m. k. Í sambandi við það að gera verzlunina frjálsa þá mætti náttúrlega athuga ýmsar leiðir. Það mætti t. d. telja eðlilegt, að þær vörutegundir, sem eru fluttar inn án nokkurrar skerðingar, eins og t. d. matvörur og þá jafnvel kaffi og sykur, yrðu gefnar frjálsar, þannig að menn þyrftu ekki að sækja undir gjaldeyrisyfirvöldin um innflutning á slíkum vörum. Og einnig mætti hugsa sér, að ekki væri óeðlilegt, að nauðsynlegustu útgerðarvörur væri farið með á sama hátt, því að það er vitanlegt, að menn kaupa ekki meira af slíkum vörum en þeir þurfa að nota til útgerðarinnar. En það hefur verið þannig og verður meðan nokkur möguleiki er á því, að menn, sem sjávarútveg stunda, verði látnir hafa þær vörur og tæki, sem þarf til þess að halda útveginum áfram.
Þetta frv., sem hér liggur fyrir, miðar að því að festa það skömmtunarfyrirkomulag, sem nú er fyrir hendi, og auka það, því að frv. byggist á því. En eins og kunnugt er, er skömmtunin nú — og hefur verið um skeið komin svo að segja alveg úr reipunum. Og ég tel, að skömmtunin geri ekkert gagn eins og komið er. Það er því mál, sem þarf að athuga með mikilli gaumgæfni, hvort ekki væri betra hreinlega að afnema skömmtunina, en að halda henni áfram eins og nú er, þar sem skömmtunarseðlarnir eru miklu meiri, en svarar til vörumagnsins. Og þegar svo er komið, þá er þetta orðið að skriffinnskubákni, sem ekkert gagn gerir, bákni, sem kostar ríkissjóð nú nærri eina millj. kr. á ári. Þær vörur, sem skammtaðar eru nú, eru vefnaðarvörur og skófatnaður, smjörlíki, smjör og sykur og eru stærstu liðirnir þar skófatnaður og vefnaðarvörur, og sú skömmtun, sem hefur verið á þessum vörum, hefur ekki komið að haldi undanfarið, og það er ekki líklegt, að hún komi að haldi á næstunni, af þeirri einföldu ástæðu, að það verður síður en svo hægt að flytja þessar vörur inn í landið í því magni, að þær geti fullnægt þörfum manna svo að nokkru nemi. — Þungamiðja þessa frv. er einnig, að út verði gefin stofnleyfi fyrir ákveðnum vöruflokkum. Ég vil benda á það, að þetta nær ekki tilgangi sínum, nema því aðeins að hægt sé að gefa út þessi stofnleyfi í svo miklu magni, að það komi að notum. Eins og nú standa sakir, er ekki útlit fyrir, að hægt sé að úthluta vörum eins og verið hefur undanfarið. Úthlutunin á þessum vörum verður af svo skornum skammti á næstu mánuðum, að skömmtunarhlutirnir verða miklu minni, en verið hefur undanfarið. Maður verður að vonast til þess, að úr þessu rætist, þó að fyrir því sé engin trygging. En mér sýnist, að ef þessi stofnleyfi eiga að vera þungamiðjan í þessari framkvæmd, þá sé ekki heppilegur tími til þess nú að hefja slíka framkvæmd.
Hér hafa komið fram ýmsar brtt. við frv., og ég vildi mælast til þess, að atkvgr. yrði ekki látin fara fram um frv. í dag, heldur að frestur fengist með það fram yfir helgina, til þess að athuga málið nánar og brtt. Umr. geta sjálfsagt haldið áfram að öðru leyti um málið í dag. Þó vildi ég mælast til þess, að umr. yrði ekki lokið nú á þessum fundi, þannig að hægt væri að koma með brtt. við það fyrir 3. umr.