11.05.1950
Neðri deild: 99. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 174 í C-deild Alþingistíðinda. (2905)

63. mál, fjárhagsráð

Frsm,. minni hl. (Skúli Guðmundsson):

Ég vil mæla gegn þeirri brtt., sem hv. 2. þm. Rang. leggur hér fram viðvíkjandi umorðun á b-lið 4. gr., um innflutning á varahlutum til bifreiða og bifreiðagúmmíi. Mér finnst ástæðulaust að ákveða í löggjöf, að viðgerðarverkstæði bifreiða ein skuli fá leyfi fyrir þessum hlutum. Með því væru, bifreiðaeigendur of háðir verkstæðum, og tel ég því eðlilegra að hafa þetta eins og það er nú í frv., að það geti farið eftir því, sem bifreiðaeigendur óska, hvort leyfin fara til verzlana eða viðgerðarstöðva. — Um hina till. hans vil ég segja það, að ég treysti mér ekki heldur til að mæla með henni. Hún gengur í aðra átt en till. um þetta efni, sem ég flutti, en var felld við 2. umr., þar sem gert er ráð fyrir því, að innflutningsleyfi fylgi fjárfestingarleyfi til þeirra, sem fá þau. Hér er hins vegar gert ráð fyrir því að byggingarefni eigi allt að fara um hendur bæði heildsala og smásala, en ég tel ekki heppilegt að ákveða slíkt, því að í mörgum tilfellum er það þannig, að smásöluverzlanir hafa flutt inn sjálfar seint frá útlöndum byggingarefni í allstórum stíl, og ég tel, að þær eigi að hafa möguleika til þess áfram. Ég tel því að þessi till., eins og hún er orðuð, sé sízt til bóta, heldur hefði átt að hafa þetta á þann veg sem ég lagði til, að þeir, sem fjárfestingarleyfi fá, fái einnig innflutningsleyfi fyrir efninu og fái sjálfir að ákveða, hvernig þeir afla sér efnis út á þau leyfi.