15.12.1949
Neðri deild: 13. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 175 í C-deild Alþingistíðinda. (2912)
65. mál, jeppabifreiðar
Flm. (Ásgeir Bjarnason):
Herra forseti. Þetta frv., sem hér liggur fyrir, er um breyt. á og viðauka við l. frá s. l. vori um innflutning og úthlutun jeppabifreiða til landbúnaðarþarfa. Sú breyt., sem gerð er á þeim l., er fyrst og fremst sú, að n., sem ætlað er að úthluta jeppabifreiðum, skuli einnig ætlað að úthluta heimilisdráttarvélum. Hvernig n. skuli vera skipuð, höfum við gert dálitla breyt. á, þannig að þrír aðilar í n. skuli kosnir af stjórn Búnaðarfélags Íslands, en tveir af Stéttarsambandi bænda. Virðist eðlilegt, að þessar tvær stofnanir fari með úthlutun á þeim tækjum, sem tilheyra bændastéttinni, því að þetta eru tvær höfuðstofnanir, sem tilheyra bændastéttinni fyrst og fremst, þar sem Búnaðarfélag Íslands og Stéttarsamband bænda standa saman af hreppabúnaðarfélögum og búnaðarsamböndum landsins, sem eru aðallega félagsskapur bændastéttarinnar. — Í l. er gert ráð fyrir, að fimmti maður í n. sé kosinn af landbn. Alþ., en við gerum þá breyt. á þessu í frv., að sá maður verði ekki kjörinn af landbn., heldur af stjórn Búnaðarfélags Íslands. Hin breyt. á l. er sú, að 12. gr. verði felld burtu, en í hennar stað komi 2. kafli l., sem eingöngu fjalli um úthlutun heimilisdráttarvéla. S. l. vor var notuð þessi heimild til úthlutunar á nokkrum hluta af þeim dráttarvélum, sem til landsins voru fluttar, en þó ekki öllum, þ. e. a. s. úthlutun á vélum frá einum innflytjanda. Það virðist eðlilegt, ef á annað borð einhver sérstök n. á að úthluta vélum, sem koma til landsins, að það sé þá úthlutað öllum vélum, en ekki einhverjum hluta af þeim, og við gerum það að till. okkar í þessu frv., að svo sé, og sé enginn þar undanskilinn. Það mætti margt um þetta segja, sem mætti verða til úrbóta í þessu máli. Það væri t. d. æskilegt, að til landsins flyttust aðeins nokkrar, örfáar beztu tegundir heimilisdráttarvéla, sem völ er á, en til þess verður að taka tillit á hverjum tíma, hvar hægt er að fá þessar vélar og hvernig gjaldeyrisástandið er. Það er líka vitað mál, að það er ekki nóg aðeins að flytja inn dráttarvélar, heldur er líka nauðsynlegt að fá tæki til þeirra. Það er því í okkar till. gert ráð fyrir, að gjaldeyrisyfirvöldunum sé skylt að veita innflutnings- og gjaldeyrisleyfi fyrir tilheyrandi verkfærum, 50% miðað við verðmæti vélanna. Þetta kann að virðast nokkuð mikið, en það er misjafnt, hvað bændur gera miklar kröfur til véla, og ætti það að geta jafnað sig þannig, að þeir, sem ekki gera mjög miklar kröfur, geti miðlað hinum, sem kjósa fleiri tæki. En þetta er atriði, sem alltaf má breyta eftir því, sem hverjum þykir henta og reynslan sýnir, að hagkvæmast er.
Það hafa flutzt nokkrar vélar til landsins undanfarin ár. Þó er vitað, að það er miklu minna en eftirspurnin og þörf er fyrir, því að það mun ekki vera meira en fimmti hver bóndi, sem á heimilisdráttarvél. Þessar vélar eru nýlegar, en þó er farið að bera á allmiklum bilunum í þeim, og hefur verið skortur á varahlutum, þegar á þarf að halda. Þetta er vandræðamál. Það er þegar búið að flytja þessi tæki til landsins og ekki er hægt að breyta því, en það vantar oft lítil stykki, til að þessi tæki geti starfað óhindrað, og þess vegna förum við fram á, að jafnan verði séð fyrir nægilegum varahlutum til þeirra véla, sem inn verða fluttar.
Ég ætla svo ekki að ræða meira um þetta. Ég legg til, að málinu sé vísað til 2. umr. og landbn.