06.05.1950
Neðri deild: 96. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 177 í C-deild Alþingistíðinda. (2921)
65. mál, jeppabifreiðar
Jón Sigurðsson:
Herra forseti. Hv. frsm. hefur mælt fyrir n., en þar sem ég hef sérstöðu, vildi ég segja fáein orð. — Ég er með brtt. n., en á móti þeirri breyt., er gerð er með 2. gr. frv. Ég tel, að með breyt., sem gerð var á síðasta þingi, hafi verið þannig frá þessu gengið, að ekki sé ástæða til breyt. nú. Ég tel rétt, að landbn. Alþ. hafi hér hönd í bagga, enda var um þetta fullt samkomulag þá. Hins vegar finnst mér rétt, að dráttarvélar falli einnig undir ákvæði l. og að n., sem um þetta fjallar, afli sér fyllri gagna en unnt var síðasta ár og láti sér þau mistök, er þá áttu sér stað, að kenningu verða.
Ég legg til, að 1. og 2. gr. frv. falli niður, en er annars fylgjandi öðrum breyt.