15.05.1950
Efri deild: 108. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 183 í C-deild Alþingistíðinda. (2941)
65. mál, jeppabifreiðar
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Ég þarf nú ekki að tala mikið um þetta frv., því að hv. frsm. hefur gert það. Ég hygg, að það sé á misskilningi byggt, þar sem þetta gildir aðeins um heimilisvélar til landbúnaðarþarfa, að það þurfi að taka fram, að þetta eigi ekki að ná til dráttarvéla, sem notaðar eru við uppskipun, enda er þar vissulega um að ræða aðrar tegundir dráttarvéla en þær, sem notaðar eru til landbúnaðarþarfa. (GJ: Það eru dráttarvélar.) En það er beint talað um það í jeppalögunum, að um sé að ræða dráttarvélar til landbúnaðarþarfa, og því ákveður breyt. á þeim l. ekki um aðrar dráttarvélar en þær. — Við erum tiltölulega ungir í notkun þessara dráttarvéla. Þær hafa ekki komið verulega til landsins fyrr en á síðustu árum, en eru nú orðnar nokkuð margar í landinu. Það munu vera til nú í landinu, notaðar í þágu landbúnaðarins, sem næst 1.270 dráttarvélar. Þó eru þær orðnar til hér í landinu fleiri hlutfallslega, en í mörgum öðrum löndum, miðað við tölu bænda hlutfallslega fleiri, en í Danmörku og mörgum sinnum fleiri, en í Noregi. Þó finnst þeim þar ástæða til þess að setja reglur um það, hvernig aðstaða þessara véla er, þegar þær koma út á vegina og mæta bifreiðum og öðrum hjólaverkfærum og ökutækjum, — hvernig aðstaða þeirra er, ef árekstrar verða og annað þess háttar. Nú, einmitt þessa daga sá ég í dönskum blöðum, að þeir eru að ræða um það að setja inn í l. í Danmörku ákvæði um réttindi til þess að aka þessum vélum úti á landvegunum. Og þegar við ræddum mál þetta, sem hér liggur fyrir, í landbn., þá vorum við að tala um, hvort ekki væri þörf á því hér að taka ákvæði upp um þetta. Við treystum okkur ekki til að gera það nú. En t. d. í þessu frv., sem liggur fyrir danska þinginu, er þessu skipt í þrennt. Í fyrsta flokknum skulu vera þeir, sem ekki fara út fyrir landareignina, þar sem vélin á heima, en ekki fara með þær út á vegi, sem svara til þjóðvega eða sýsluvega hér heima. Og það má aka þessum vélum hver sem vill. Þær vélar eru notaðar á akrinum heima, og það á ekki að skrásetja þær. En hér fannst okkur, að vegna úthlutunarinnar þyrfti að skrásetja þessar vélar, sem Danir sleppa alveg við það. — Svo koma í öðrum flokkinum hjá þeim í Danmörku, sem vilja gera þessa lagabreyt., dráttarvélar, sem mega fara allt að 3 km. út frá býlinu, þar sem þær eru, svo sem til næstu járnbrautarstöðvar eða mjólkurbús. Þessum vélum mega stýra minnaprófsmenn. Meiningin er að láta skrásetja þessar vélar og greiða eitthvað af þeim. En þeir, sem eiga að vera í þriðja flokknum og mega fara lengra út á vegina með vélarnar, þurfa að vera meiraprófsmenn, og hafa þær öll réttindi eins og bifreiðar.
Nú vildi ég gjarnan, þar sem véltæknin hér á landi er orðin svona mikil og aðstaða hér þannig, að menn aka dráttarvélum mjög mikið í veg fyrir áætlunarbíla og margir draga alveg að sér úr kaupstað á þeim vörur — ég vildi gjarnan mega heyra frá hæstv. landbrh., hvort ekki megi vænta þess, að hæstv. ríkisstj. athugi þessa hlið málsins fyrir næsta þing. Ég get búizt við því, að ákvæðum laga um skrásetningu þessara véla og skrásetningargjaldinu þyrfti að breyta hér hjá okkur eins og hjá Dönum, í samræmi við það, hve mikið þær eru notaðar hér á vegum úti.
Mér er kappsmál, að þetta frv., sem hér liggur fyrir, verði samþ. nú á þessu þingi, til þess að reynt verði með því að koma í veg fyrir, að það endurtaki sig, sem gerzt hefur tvö síðustu árin, að fjárhagsráð hefur veitt leyfi fyrir vélum, sem fluttar hafa verið inn og svo enginn viljað kaupa. Í fyrra kom ný tegund af þessum vélum, sem ekki hafði komið áður. Allir, sem komu til greina í fyrstu umferð, vildu ekki fá þær. Þeir vildu aðra tegund. Í annarri eða þriðju umferð var hægt að fá menn til að taka við þeim. Ef þetta frv. væri samþ., þá gæti það legið fyrir, hvaða vélar menn vildu fá, áður en þær eru pantaðar, til þess t. d., að ef menn vilja fá helmingi meira af einni vélategund en annarri, þá sé hægt að panta helmingi meira af þeirri tegundinni þannig að leyfum verði hagað í samræmi við það. Og væri það betra en að neytt sé inn á menn vélum, sem þeir ekki kæra sig um. Það eru nú til 26 tegundir dráttarvéla í landinu. Af þeirri tegundinni, sem fæst er ti1 af, er aðeins ein til. Af nokkrum tegundum eru til þrjár til fjórar og upp í átta vélar, og ekki eru nema tvær tegundir, sem nokkuð margt er af í landinu. Og ef varahluti vantar í þær vélar, sem fátt er til af, hygg ég, að nokkuð erfitt muni reynast að fá þá. — Af þessum ástæðum taldi ég sjálfsagt að reyna að koma þessu frv. í gegn á þessu þingi, ef þetta mætti lagast nú, enda þótt ég viti um hitt atriðið, notkun dráttarvélanna úti á vegunum og í sambandi við það breytilega skrásetningu á vélunum, eftir því, hve mikil ábyrgð er lögð á menn, sem eiga að aka þeim, gagnvart umferðinni á vegum úti. Ég vildi óska þess, að hæstv. landbrh. athugaði það fyrir næsta þing, hvort ekki væri rétt að setja í lög ákvæði um skrásetningu þessara véla og um réttindi til að mega aka þeim á vegum úti. — Vænti ég svo, að þetta frv. verði nú samþ., því að það ræður bót á ólagi, sem hefur endurtekið sig hvað eftir annað á tveimur síðustu árum.