15.05.1950
Efri deild: 108. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 185 í C-deild Alþingistíðinda. (2943)

65. mál, jeppabifreiðar

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Þessar umr. hafa nú farið inn á allt annað svið en orð mín gáfu tilefni til. Hins vegar tek ég ekki nærri mér, þó ég fái hnútur frá landbn., því að það eru ævinlega þakkirnar, ef ég bendi á atriði, sem ég tel, að betur megi fara. Þó sé ég nú, að landbn. hefur fallizt á mitt sjónarmið í þessu tilfelli. Annars vil ég benda frsm. landbn. á, að gefnu tilefni, að umr. eiga að vera til þess að upplýsa málin, og það er alveg óþarft fyrir hans hátign, yfirvaldið í Dalasýslu, að vera með hnútukast í minn garð út af þessu máli. Ég veit alveg eins vel um þörf bænda í þessu efni eins og hann. Hitt kann ég ekki við hjá landbn., að hún liti á bændur eins og einhverja betlara, en í það virðist oft skína. Bændur óska áreiðanlega ekki eftir slíku, og vænti ég, að frsm. landbn. venji sig af þeim ósið.