12.01.1950
Neðri deild: 28. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 201 í C-deild Alþingistíðinda. (2973)
85. mál, eyðing refa og minka
Flm. (Jörundur Brynjólfsson):
Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða um þetta mál að þessu sinni. Þetta er gamall kunningi, og hafa hér í grg. verið færð fram rök fyrir nauðsyn þess, að málið gangi fram í þeim búningi, sem við leggjum til. Og þar sem það fer til landbn., sem gefst kostur á að kynna sér þau gögn, sem henni berast, sé ég ekki að þessu sinni ástæðu til að fjölyrða frekar um málið, en vil vænta þess, að landbn. afgreiði málið af sinni hálfu skjótlega, svo að það geti fengið afgreiðslu á þessu þingi.