06.12.1949
Sameinað þing: 8. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1528 í B-deild Alþingistíðinda. (30)
Stjórnarskipti
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Ég vil fyrir hönd Sósíalistaflokksins lýsa yfir, að flokkurinn er andvígur þessari ríkisstj. og álítur þær aðferðir, sem beitt hefur verið við myndun stjórnarinnar, mjög aðfinnsluverðar. Þingflokkunum hafa ekki verið gefin þau tækifæri, sem þeim þó var heitið, að reyna, hvort hægt væri að mynda stjórn, sem væri örugg gegn vantrausti. Það var rangt að fela form. eins stjórnmálaflokks völd til myndunar minnihlutastjórnar án þess að ráðgast fyrst við formenn annarra þingflokka, svo fremi Ólafur Thors hafi ekki við forseta lýðveldisins lagt fram líkur fyrir hlutleysi eða stuðningi, leynt eða ljóst, frá fleirum, en sínum eigin flokki, og það er það, sem mér virðist, sérstaklega frá form. Alþfl., að núverandi hæstv. forsrh. muni á einn eða annan hátt hafa tryggt sér. Ég vil taka það fram, að það er á ábyrgð alls Alþfl. og vissra afla í Framsfl., að þessi stjórn er komin til valda. Þau öfl hafa, undir annarlegu yfirskini, hindrað myndun annarrar stjórnar og virðast nú ætla að leyfa þessari stjórn að sitja við völd, þar til hægt verði að mynda þriggja flokka stjórn, þeirra, sem áður fóru með völdin. Ég hef ekki trú á, að hagsmunir alþýðunnar verði tryggðir að neinu leyti með því, sem þessi stjórn kæmi til með að leggja fyrir, og jafnvel því síður, svo framarlega sem ný þriggja flokka stjórn kæmi. Sósfl. er því andvígur þessari stjórn og mun hvorki veita henni hlutleysi né stuðning. Hann mun taka afstöðu til þeirra mála, er hún kann að flytja, samkvæmt eðli þeirra málefna. Hann mun fylgja vantrausti, ef hinir flokkarnir flytja það. Flytji þeir ekki vantraust, mun Sósfl. sjálfur gera ráðstafanir til þess að prófa fylgi ríkisstj. í þinginu, þegar honum þykir henta.