18.04.1950
Efri deild: 90. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 216 í C-deild Alþingistíðinda. (3002)
85. mál, eyðing refa og minka
Þorsteinn Þorsteinsson:
Herra forseti. Ég var aðeins einn af dátunum í n. og hef kannske ekki allar upplýsingar í málinu, en eftir frásögn manna virtust fullorðnir minkar í landinu vera um 1.200–1.500 pör. Ég þori þó ekkert að fullyrða um það, því að þetta er aðeins frá einstökum mönnum, en ekki búunum sjálfum. En ef til vill eru þeir færri, þar eð ég hygg, að einstaklingar hafi ef til vill ekki gert minna úr fjölda þeirra, heldur en er. Um fjölda villiminka treysti ég mér ekki til að segja, og eru þeir sennilega óteljandi, eins og eyjarnar á Breiðafirði. Um útbreiðsluna get ég ekki sagt fyrir víst. Ég bý á útjaðri svæðis þess, sem talið er, að þeir séu á, en það er erfitt að átta sig á þessu. Þeir komu allt í einu í Laxárdalinn, en var eytt þar og hafa ekki komið aftur. En þeir eru í Haukadal, og víðar eru þeir um sunnanverða Dalina og munu vera komnir norður í land, í Húnavatnssýslu, en ég veit ekki, hvort þeir eru komnir lengra. Þá eru þeir komnir austur í Rangárvallasýslu og dautt kvikindi fannst við Laxá í Þingeyjarsýslu. Þeir breiðast nú út við Breiðafjörð og eru komnir að Klofningi.
Út af fyrirspurn hv. 1. þm. N-M. um það, hvort ráðnir hefðu verið eyðingarmenn, þá get ég ekkert sagt honum um það, en lögin voru staðfest svo seint, að sýslufundir voru búnir, en ein sýsla bannaði þó minkaeldi og vildi ráða eyðingarmann, sem var nauðsynlegt, því að hreppar eiga sameiginleg lönd og því heppilegra að fá sameiginlegan eyðingarstjóra, en hver oddviti sé ekki að puða fyrir sig. Þess vegna er ekki í mínum till. gengið fram hjá eyðingarstjóra, sem sýslan getur ráðið fyrir alla sýsluna eða parta af henni, og laun hans eru að greidd af hrepp og sýslu og 2/3 af ríkinu.
Út af matinu, sem hæstv. fjmrh. var að spyrja eftir, þá get ég ekki sagt honum, hverjir eigi að meta, en líklega ákveður sýslumaður matsmenn, og verður að meta dýrin og mannvirki. Og eins og hæstv. ráðh. sagði, þá getur verið til athugunar, hvort ekki á einnig að meta atvinnutap. Minkaeigendur segja, að þetta sé nú mjög arðsöm atvinnugrein, og eru á móti því, að hún verði bönnuð. Það má búast við, að þetta verði nokkuð dýrt, og hefur hér verið tæpt á 1 millj. kr. Ég veit, að hæstv. form. n., eins duglegur og hann er, mundi láta athuga þetta fljótt. Ég kom með það í brtt. mínum, að eyðingarstjóri hafi eitthvað um þessi mál að segja og að ekki megi ganga fram hjá honum, en síðasta till. er aðeins leiðrétting. Ég mæli sérstaklega með 3 fyrstu till. mínum, en legg ekkert kapp á, hvort málinu verður frestað eða ekki, og um það ræður okkar ágæti forseti.