16.02.1950
Neðri deild: 47. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 239 í C-deild Alþingistíðinda. (3047)
116. mál, kosningar til Alþingis
Landbrh. (Jón Pálmason) :
Herra forseti. Mér finnst rétt að segja nokkur orð um þetta frv., áður en það fer til n. Þótt ákvæði frv. þessa stefni í rétta átt, þá væri eðlilegra og heppilegra, að lögfest yrðu ákvæði, sem gengju yfir alla línuna, þ. e. næðu til Alþingis- og bæjar- og sveitarstjórnarkosninga. Þó að ég sé þessu frv. hlynntur, þá álit ég, að hentugra væri að ganga frá þessu á nokkuð annan hátt. Ég tel, að það væri betra, að ekki yrði farið eftir stafrófsröð hvað listabókstafina snertir. Við þekkjum það t. d. frá kosningum hér á Alþingi, þegar hlutbundnar kosningar hafa farið fram, hve stafir geta hljómað líkt. Eðlilegra væri því að auðkenna listabókstafinn við upphafsstafinn í heiti stjórnmálaflokksins, en þá yrði listi Alþýðuflokksins auðkenndur með bókstafnum A, listi Framsóknarflokksins með F og listi Sjálfstæðisflokksins S. Nú hefur Sósíalistaflokkurinn sama upphafsstaf og Sjálfstæðisflokkurinn, og yrði þá að velja öðrum þessum flokki annan bókstaf fyrir lista sinn, líkt og venja hefur verið með skásetningu bifreiða í héruðum landsins, en eins og kunnugt er, eru ekki allar bifreiðar kenndar með skrásetningarstöfum sínum með upphafsstaf í heiti þeirrar sýslu eða þess héraðs, sem ökutækið er skrásett í. Ég held, að þetta yrði heppilegri leið, en að nota líka stafi, eins og b, c og d, sem hljóma svo líkt, þegar lesnir eru upp. Með þessu yrði aðgreining listanna gleggri. Að þessu vildi, ég víkja og vildi skjóta þessu að n., sem væntanlega fær þetta frv. til athugunar.