01.03.1950
Neðri deild: 57. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 246 í C-deild Alþingistíðinda. (3066)

122. mál, verkstjóranámskeið

Frsm. (Emil Jónsson):

Herra forseti. Iðnn. hefur borizt þetta frv. frá hæstv. iðnaðarmálarh., og er það flutt að ósk hans. En nm. áskilja sér rétt til þess að flytja við það brtt. eða fylgja öðrum, sem fram kunna að koma.

Á undanförnum árum hefur verið veitt úr ríkissjóði nokkur fjárupphæð til menntunar verkstjórum. Hafa af hálfu verkstjórasamtakanna og undir stjórn aðallega vegamálastjóra og að nokkru leyti einnig vitamálastjóra verið haldin námskeið í því skyni að auka nokkuð menntun þeirra manna, sem leggja vildu fyrir sig verkstjórn. Verkstjórasamtökin hafa frá upphafi beitt sér fyrir þessu máli. Og fyrir tæpum tveimur árum var þess farið á leit af þeirra hálfu við mig, sem þá hafði með þessi mál að gera í iðnmrn., að sett yrði nefnd til þess að athuga, hvernig þessum málum yrði bezt skipað. Nefndin var svo sett á laggirnar og voru í henni fulltrúi frá samtökum verkstjóra, vegamálastjóri og forstöðumaður Iðnskólans í Reykjavík. Þeir sömdu síðan frv. það, sem hér liggur fyrir, og sendu rn. sem síðan hefur sent það, að ég ætla óbreytt til aðgerða Alþ.

Innihald lagafrv. þessa er í stuttu máli að lögfesta, að árlega skuli haldið námskeið í allt að 6 mánuði til þess að búa menn undir verkstjórapróf. Þar er greint frá þeim inntökuskilyrðum, sem sett eru fyrir því, að menn fái að taka þátt í námskeiðunum, hvernig prófum skuli háttað að námskeiðum loknum, og þeim réttindum, sem þessi próf veita, þegar menn hafa innt þau af hendi. En þessi réttindi eru í stuttu máli þau, að þeir, sem lokið hafa prófi, skuli í opinberri vinnu ganga fyrir öðrum, sem ekki hafa lokið þeim. Önnur eða meiri réttindi veitir frv. að vísu ekki. En ætla má, að það þyki sjálfsagt líka, að þegar menn hafa numið þau fræði, sem á námskeiðunum er veitt kennsla í og miðuð eru við þeirra starf, þá muni það koma af sjálfu sér, að þeir menn nái þar forgangsrétt, sem þeirrar menntunar hafa notið.

Í frv. er gert ráð fyrir, að Iðnskólanum í Reykjavík verði falið að sjá um námskeiðin. — Í sjálfu frv. er því ekki slegið föstu, hvað skuli kennt á námskeiðunum. Það er ætlazt til, að það sé reglugerðaratriði. En í grg. frv. eru nefnd helztu atriðin, sem þar koma til greina. — Þar er skýrt frá, eftir lauslegri áætlun, hver kostnaður muni verða af þessum námskeiðum, og gert ráð fyrir, að hann geti orðið á ári allt að 30 þús. kr. með einni kennsludeild, sem gert er ráð fyrir, a. m. k. til að byrja með. Ef kennslugjald er tekið af verkstjóraefnunum, eins og í grg. frv. er gert ráð fyrir, 500 kr. á mann, og 30 nemendur verða teknir á ári, verður kostnaðurinn, sem ríkissjóður þyrfti að inna af hendi í þessu skyni, um 15 þús. kr. Mig minnir, að kostnaður, sem ríkið stendur undir nú við það frumstæða námskeiðshald, sem í þessu efni nú er haldið uppi, sé 5 þús. kr. á ári, svo að þetta mundi að vísu verða lítilfjörleg aukning frá því, sem nú er.

Ég hygg, að öllum hv. þdm. sé það ljóst, hversu geysiþýðingarmikið atriði það er fyrir allar okkar framkvæmdir, að þær fari vel úr hendi og að einmitt þessir menn kunni vel til verka, og að það sé sannarlega ekki til of mikils mælzt, að það opinbera geri ráðstafanir, sem þó eru ekki kostnaðarmeiri, heldur en hér er gert ráð fyrir, til þess að þessir menn geti fengið nokkra menntun, svo að þeir geti verið þeim mun hæfari til síns starfs.

Ég hef svo ekki fleira um frv. þetta að segja, en vildi leyfa mér að leggja til, að því verði, að þessari umr. lokinni, vísað til 2. umr.