17.03.1950
Neðri deild: 69. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 251 í C-deild Alþingistíðinda. (3090)

131. mál, stofnlánadeild sjávarútvegsins

Pétur Ottesen:

Það hefur borið að með einkennilegum hætti um flutning þessa frv. Áður hafði verið flutt um þetta efni frv. af hv. 2. þm. Reykv., að vísu í nokkuð öðru formi en þetta. Því frv. var vísað til sjútvn. sem hefur athugað málið og m. a. sent það, til Landsbankans. Nú hefur fjhn. þessarar d. verið falið að flytja þetta frv., sem er — eins og ég tók fram — í nokkuð öðru formi, en hið fyrra.

Þetta frv. var til 1. umr. í gær, og vakti þá hæstv. forseti, hv. þm. N-Ísf., máls á því, að ástæða væri til að taka það til verulegrar athugunar, þar sem sýnt væri, að þrátt fyrir ákvæði þessa frv. mundu nokkrir verða útilokaðir frá því að fá lán úr stofnlánadeildinni, því að eftir ákvæðum frv. eiga einungis þeir að fá lán úr stofnlánadeildinni, sem ríkissjóður hefur greitt fyrir. — Ég hef nú kynnt mér þetta nokkuð og hef komizt að raun um, að nokkrir bátaeigendur, sem fengið höfðu loforð fyrir láni hjá nýbyggingarráði, en fengu það þó ekki, verða útilokaðir frá hlunnindum þessa frv. Ég hef því hugsað mér að flytja brtt. um, að þessir menn fái einnig að njóta réttinda þessa frv. En ég er ekki tilbúinn með þessar brtt. og vildi því fara fram á það við hæstv. forseta, að hann frestaði umr. nú, eða a. m. k. að frv. yrði ekki tekið til 3. umr. fyrr en ég hef lokið nauðsynlegum undirbúningi til þess að geta komið með brtt. mínar. Það skiptir ekki máli, hvor leiðin er farin, því að auðvitað get ég eins komið með brtt. við 3. umr., ef ekki er rekið um of á eftir málinu.