17.03.1950
Neðri deild: 69. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 252 í C-deild Alþingistíðinda. (3092)

131. mál, stofnlánadeild sjávarútvegsins

Finnur Jónsson:

Herra forseti. Eins og kunnugt er, hafði nýbyggingarráð gefið loforð fyrir lánum til allmiklu fleiri fyrirtækja, en fengu þau. Ef nú breytingar væru gerðar á stofnlánadeildarlögunum, þá ættu þær að vera í þá átt að uppfylla þau loforð eftir getu deildarinnar, sem gefin hafa verið, en ekki uppfyllt, eins og til þeirra fyrirtækja, sem hafið hafa undirbúning, en eru ekki komin á þá leið, sem ætlað hafði verið. Mér er t. d. kunnugt um eitt fyrirtæki á Vesturlandi, sem lofað hafði verið stofnlánadeildarláni, en ekki fengið, og er aðeins búið að koma upp hluta af því, sem það hafði fyrirhugað. Mér finnst því, að ef breytingar yrðu gerðar á stofnlánadeildarlögunum, þá ættu þær að vera þannig, að deildin greiddi fyrst þau loforð, sem nýbyggingarráð hafði gefið.