29.11.1949
Efri deild: 6. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 272 í C-deild Alþingistíðinda. (3142)

30. mál, stóríbúðaskattur

Hannibal Valdimarsson:

Herra forseti. Ég efa það ekki, að það sé rétt hjá þeim hv. þm. sem hér hafa staðið upp og andmælt þessu frv., að það megi margt við það athuga og að það liggi eitthvert verkefni fyrir þeirri n., sem fær frv. til meðferðar. Málið er sjálfsagt bæði umfangsmikið og vandasamt, og þess vegna má vel búast við því, að ýmsu þurfi að breyta, ef til vill skattupphæðinni og skattgrundvellinum, og tillit að taka til ýmissa atriða. Ég get t. d. vel hugsað mér, að vafasamt sé að einskorða það svæði, sem frv. ætti að ná til, við þá staði þar sem húsaleigul. séu í gildi. Ég get hugsað mér, að það orkaði mjög tvímælis. Það er auðvitað margt fleira, sem kemur til greina, t. d. tillit til hinna opinberu húsnæðisl., l. um verkamannabústaði og samvinnubyggingarfélög. Það er mikið til í því, sem hæstv. dómsmrh. sagði, að fljótt á litið virðist óeðlilegt, að húsnæði, sem ríkið styrkir menn til að koma upp, verði síðan með annarri löggjöf skattlagt. Ef til vill er ástæða til, að n., sem fær frv. til athugunar, íhugaði þetta atriði. En meðan andmælin gegn þessu frv. birtast eingöngu í barlómi fyrir hönd þeirra manna í þjóðfélaginu, sem kynnu að verða fyrir fjárhagslegum útgjöldum vegna frv., þá finnst mér tómahljóð í þeim. Ég tel það augljóst mál, að það sé ekki nema réttlætismál og þjóðfélagslegt nauðsynjamál að skattleggja húsnæði, sem er illa notað, í þjóðfélagi, sem ekki hefur efni á að byggja yfir húsnæðislaust fólk. Ég sé ekki annað, en að það sé sjálfsagður hlutur, ef það er mjög algengt, — sem virðist vera sannfæring hv. þm. Barð., — að tvær til þrjár hræður búi í stórum íbúðum, en sumir eru húsnæðislausir, og þjóðfélagið getur ekki veitt fjárfestingarleyfi, svo að það fólk geti byggt sér íbúðir, — þá sé ég ekki annað, en það sé réttlætismál, að þetta stóra húsnæði, þar sem tveir til þrír menn búa kannske í húsnæði, sem gæti verið sæmilegt fyrir 20 til 30 manns, sé skattlagt. Og ég tel, að það gæti orðið til þess, ef menn vilja ekki taka á sig skattaálögur og vilja heldur ekki þrengja að sér, þá fái þeir sér annað húsnæði og yfirgefi hið fyrra, svo að fleira fólk komist þarna undir þak. Ég sé ekki annað, en megintilgangur frv. sé réttlætismál, sem sé sá, að stuðla að betri notkun húsnæðis, sem þjóðin hefur fest fjármagn sitt í. Þetta er megintilgangur frv., þó að lagt sé til í því, að fé það, sem inn kemur, sé notað í þágu byggingarmála. Ég held, að það sé ekki rétt hjá hv. þm. Barð., þegar hann vill gera þetta að skattpíningarfrv. og fjáröflunarmáli. Andi frv. er, að nýtt verði betur það húsnæði, sem til er í þjóðfélaginu. (GJ Ekki lagði ég til, að frv. færi í fjhn.) Þó hefði verið betra, að lagt hefði verið til, að frv. færi til heilbr.- og félmn. (Forseti: Er þetta till. frá hv. þm.?) Ég get vel gert það að till. minni að láta það koma til atkv. hér. Ég tel frv. aðallega fram komið til þess, að notað verði betur það húsnæði, sem til er í landinu, og hitt sé aukaatriði, að afla fjár með því.

Hv. þm. Barð. vék réttilega að því, að hugsanlegt er, að tilgangi svipuðum þeim, sem þessu frv. er sýnilega ætlað að ná, mætti ná með því að fara aðrar leiðir, það mætti taka upp skömmtun á húsnæði. Og mér er sagt, að Norðmenn hafi mjög farið þessa leið eftir stríðið. Ég heyrði ekki betur, en að hv. þm. Barð. teldi það skynsamlegri leið, því að um þessa leið sagði hann, „að flest atriði frv. væru bæði heimskuleg og ranglát.“ Ég held, að hv. þm. Barð. hafi ekki gerhugsað það mál, þegar hann ber fyrir brjósti hag húseigenda, þegar hann vill fara skömmtunarleiðina. Það getur verið að hún sé effektivari, en hún er miskunnarlausari og gengur nær frjálsræði húseigendanna, en skattlagningarleiðin. Ef húsnæði er skammtað, er það ákveðin rúmmetratala, sem húseigandi má nota, og á hann þá einskis annars kost en að hleypa fólki inn í húsnæði sitt, hann missir valdið yfir sínu húsnæði. Aftur á móti getur í mörgum tilfellum staðið svo á, að, sá, sem býr við óþarflega rúmt húspláss, eigi þess kost að velja um, eftir efnahagsástæðum og hvaða mat hann leggur á þetta sjálfur, hvort hann vill heldur taka á sig peningaútgjöld og þrengja ekki að sér eða hvort hann vill sleppa við útgjöld og þrengja að sér eða flytja úr húsnæði sínu og selja það, afla sér síðan annars, sem er minna, og þá getur farið svo, að fleira fólk fái úrlausn sinna húsnæðismála með því að kaupa eða taka á leigu það húsnæði; sem þannig losnar. Það eru því margfaldir frjálsræðismöguleikar, sem hægt er að fá með því að fara skattlagningarleiðina, á við skömmtunarleiðina. Ég er því hissa á hv. þm. Barð. að fordæma þessa leið, sem hér er lagt til að farin verði, sem er mildari og skerðir minna rétt húseigenda, en skömmtunarleiðin.

Ég held það hafi verið hæstv. dómsmrh., sem benti á, að óeðlilegt væri, að fjölskyldur, sem hafa til þess fullan lagalegan rétt að gerast eigendur íbúða í verkamannabústöðum, — og að engin skilyrði væru um það sett í l., að það þyrfti að vera ákveðin fjölskyldustærð til þess að geta fengið styrk af ríkisfé, — væru skattlagðar, ef fjölskyldunni fækkaði eitthvað. Það má segja, að þarna komi ónotalega í baksegl, en ég vil vekja athygli á því, að l. um verkamannabústaði mundu einmitt samrýmast betur anda svona frv. heldur en þau mundu samrímast húsnæðiseign einstaklinga. Það er sá höfuðkostur við l. um verkamannabústaði, að ung hjón, sem fá byggða íbúð á vegum slíks byggingarfélags, þau geta látið sér nægja upphafi að gerast þar eigendur lítillar íbúðar, t. d. að íbúðin væri tvö herbergi og eldhús, en ef félagið hefði þessa starfsemi með höndum framvegis og fjölskylda ungu hjónanna stækkaði, þá er það mjög fær leið, að hún fengi hjá sama byggingarfélagi stærri íbúð keypta og seldi öðrum aðila minni íbúðina. Þá fær þetta fólk íbúð við sitt hæfi og annar aðili fengi einnig íbúð við sitt hæfi. Þegar svo börnin fara af heimilinu og fjölskyldunni fækkar, getur hún fengið litla íbúð keypta aftur hjá sama byggingarfélagi, og stærri fjölskylda flytti þá í hina íbúðina. Það eru líkur til, að svona hreyfingar eigi sér einmitt stað í sambandi við l. um verkamannabústaði, í sambandi víð hús, sem byggð eru eftir þeim l., ef íbúðaskattur er í l. En ef hann er ekki í l., má búast við, að ungu hjónin kaupi strax, ef þau geta, stóra íbúð og sitji í henni ævilangt, og verður þá þetta húsnæði illa notað upphaflega og svo kannske mörgum árum síðar, þegar fjölskyldan minnkar. Ég sé ekki annað, en að stóríbúðaskatturinn stuðli að því, einmitt kannske hvað þetta snertir, að húsnæði verði betur notað, að gernýtingu húsnæðis. Hjón, sem búa tvö ein í 10 herbergja íbúð og eiga, er þetta frv. verður að l., að greiða stóran skatt, mundu vafalaust, ef þau teldu sér ekki fært að greiða skattinn, reyna að selja húsnæðið stórri fjölskyldu, sem sæi fram á, að hún yrði ekki fyrir þungum búsifjum af skattinum. Hv. þm. Barð. sló því föstu, að geysilega mörg hús á öllu landinu og hér í Reykjavík mundu koma undir skattskyldu þessa frv., ef að l. yrði. Og það þýðir, að það er mikið til í þessari góðu borg og á okkar ágæta landi af húsnæði, sem er illa notað. Og spurningin er, hvort hægt er með l. að hafa áhrif á, að húsnæði verði betur notað, t. d. með skattlagningarleiðinni, eða hvort aðrar leiðir eru til þess færari. Ef einhverjir hv. þm. sjá aðrar leiðir, sem séu betur til þess fallnar að knýja fólkið til að nota betur húsnæði, til þess að hægt sé að gera úrlausn þeim, sem ekkert eða lélegt húsnæði hafa, þá vil ég vænta þess, að einmitt áður, en málið fer til n. komi þeir með sínar ágætu till. Mér fannst hæstv. dómsmrh. viðurkenna það, að full þörf væri á, að eitthvað væri gert til þess að nota betur húsnæði, sem nú er til, og mér finnst það í raun og veru sjálfsagt, þegar eins er ástatt og nú er. Það er takmarkað, sem þjóðfélagið telur sig hafa efni á að verja af byggingarefni til viðbótar og endurnýjunar húsnæðis á ári hverju, og ég álít, að þá sé full ástæða til, að löggjafinn veiti mönnum aðhald um að verja ekki t. d. helmingi meira af byggingarefni og gjaldeyri í að byggja íbúð handa sér heldur en þörfin segir til um og þurfa svo fyrir bragðið að neita öðrum um íbúðir. Mér finnst þessi skattlagningarleið einna líklegust til að veita slíkt aðhald. Ég get ekki betur séð, en að það taki fyrir slíkan lúxus í húsnæði sem stórhýsin, er standa í röð hérna vestur á Melunum, eru með „hall“ í miðju húsi, sem eru eins stór og tveir til þrír meðalverkamannabústaðir. Ég teldi það bara gott. Möguleikar mundu skapast til þess að taka fyrir svona hluti, og um leið mundu verða möguleikar á því að byggja fleiri hóflegar íbúðir, og það væri úrlausn á þjóðfélagslegu vandamáli. Mér virðist því, að það hljóti að vera viðhorf okkar alþm. til frv. að taka ekki með fjandskap megintilgangi þess og búa til úr því skattpíningargrýlu, eins og hér hefur verið reynt, heldur finna út, hvað sé til þjóðfélagslegra umbóta með megintilgangi þessa frv., og svo, að n., sem fær málið til meðferðar, geti sniðið af því vankantana, svo að það komi að sem mestum þjóðfélagslegum notum. Þó að margt megi að frv. finna og margt verði að lagfæra í n., þá er megintilgangur þess helgaður þjóðfélagslegri þörf, sem full ástæða er til að bæta úr.