28.03.1950
Neðri deild: 76. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 322 í C-deild Alþingistíðinda. (3198)

45. mál, fiskimálasjóður

Frsm. meiri hl. (Finnur Jónsson):

Herra forseti. Það kom nú ekkert nýtt fram í ræðu hv. þm. N-Þ. (GG). Hann gat þess þó, að hann hefði fengið hjá mér nokkra fræðslu í þessum efnum árið 1934, og held ég, að honum veiti ekki af að koma í framhaldsskóla hjá mér nú, því að mjög virðist hann hafa ryðgað í lærdóminum. Ég hef aldrei sagt það, að varhugavert væri að framleiða hér hraðfrystan fisk, eða að menn ættu að hætta við rekstur hraðfrystihúsanna, en hitt er annað mál, að nú lítur svo út, að mjög erfitt verði að selja hraðfrysta fiskinn, svo að það getur orðið bjarnargreiði að lána mönnum til að auka þessa framleiðslu, en þó getur verið nauðsynlegt að reisa hraðfrystihús, þar sem engin eru fyrir, en það verður engu síður að taka tillit til þess, að víða vantar aðstöðu til saltfiskverkunar.

Hv. þm. gerði mér þann greiða að sanna það, að stjórn fiskimálasjóðs hefði vanrækt rannsókn fiskimiða og nýrra veiðiaðferða, þar sem hann sýndi fram á, að í þessu skyni hafi aðeins verið veitt 1 millj. kr. á sama tíma og 3½ millj. kr. er varið til lánveitinga. Ég hef talið rétt að samþykkja frv. eins og það er, vegna þess að við höfum ekki ráð á því að vanrækja fiskirannsóknir og ýmsar tilraunir viðkomandi fiskveiðum, og vegna þess að fiskimálasjóður getur hvort sem er aldrei orðið nægjanleg lánastofnun fyrir sjávarútveginn. Hann getur hjálpað einstöku sinnum, en nægjanlegt lánafyrirtæki fyrir sjávarútveginn verður hann aldrei. Því leggur meiri hl. sjútvn. til, að frv. verði samþ. óbreytt.