28.03.1950
Neðri deild: 76. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 323 í C-deild Alþingistíðinda. (3199)
45. mál, fiskimálasjóður
Frsm., minni hl. (Gísli Guðmundsson):
Herra forseti. Hv. þm. Ísaf. (FJ) talaði um þörfina á nýjum saltfisksverkunarstöðvum. Ég held, að hann stuðli ekki að því, að þær komist upp, með afstöðu sinni í þessu máli. Af þeim fyrirtækjum, sem rætt er um að fái lán úr sjóðnum, eru 2–3 slíkar stöðvar. Ef hans till. er fylgt, eru mjög litlar líkur til þess, að þessar stöðvar fái lán úr fiskimálasjóði, a. m. k. fá þær varla lán fyrr en eftir 1952. — Hv. þm. slær því föstu, að fiskimálasjóður geti ekki orðið lánveitingastofnun, sem um muni. Ég veit nú ekki vel, hvað hann á við með þessu. Það er ætlazt til þess, að hann láni viðbótarlán út á síðari veðrétt, en ekki annað, og ef frv. er afgr. eins og það var lagt fram, þá gæti hann þetta, og meira er honum ekki ætlað.
Ég vil svo að lokum segja það, að samkv. minni till. er ekkert því til fyrirstöðu, að fé sé veitt úr fiskimálasjóði til að styrkja rannsóknir og tilraunir. Það er alveg á valdi sjóðstjórnarinnar. En hv. þm. Ísaf. og þeir, sem honum fylgja, vilja binda hendur stjórnarinnar og banna henni að lána meira en 40% af tekjum sjóðsins, en ég vil láta þetta vera á valdi hennar. Stjórn sjóðsins skipa valinkunnir menn, að ég held úr öllum stjórnmálaflokkum, og sé ég enga ástæðu til að tortryggja þá, að þeir ekki komi auga á, hvað gera þurfi varðandi rannsóknir og tilraunir í þágu sjávarútvegsins. Engin ástæða er til að slá því föstu nú að ár hvert þurfi 60% af tekjum sjóðsins í rannsóknir og tilraunir. Það getur verið mikil þörf sum ár, en önnur ár minni, og því á þetta að vera á valdi stjórnar sjóðsins.